Gestablogg – góður dagur í Stjórnarráðinu
Eins og þið vitið eflaust er búið að sinna þessum vettvangi lítið síðustu mánuðina, en einhverra hluta vegna hef ég ekki tímt að rífa það niður. Og það var eins gott, því hér er gestablogg sem mér barst frá vini mínum Arnari Knútssyni.
Arnar er praktískur maður, og hér er hans tillaga að góðum og afkastamiklum vinnudegi hjá þeim sem starfa að endurreisn Íslands.
8:30 Jóhanna og Steingrímur hittast í forsætisráðuneyti, stutt kaffispjall og síðan sest niður til fundarhalda ásamt ritara úr forsætisráðuneyti. Slökkt á farsímum.
08:50 Eftirfarinn tölvupóstur sendur til Páls Hreinssonar, form. rannsóknarnefndar um bankahrun: “Sæll Páll, við þurfum skýrsluna eigi síður en á mánudagsmorgun (1. febrúar). Þetta er ekki ósk, þetta er skipun. Kveðja, J & S.”
09:00 Lagafrumvarp um tafarlaust afnám bankaleyndar skrifað upp. Sent með tölvupósti til þingmanna og viðeigandi nefnda. cc: til sérstaks saksóknara.
09:20 Lagafrumvarp um tafarlaust afnám verðtryggingar. Sent með tölvupósti til þingmanna, viðeigandi nefnda og Seðlabanka. Ritara falið að senda tölvupóst til lífeyrissjóða og stærstu fjármagnseigenda með skilaboðunum “Þetta verður erfitt en þið verðið bara díla við þetta”.
09:40 Frumvarp um jafnt atkvæðavægi allra landsmanna í kosningum gert. Textinn getur t.d. verið svona “Í alþingiskosningum gilda öll atkvæði jafnt, óháð búsetu”. Og fyrst þetta var svona auðvelt er ákveðið að bæta við setninunni. “Heimilt er að greiða atkæði rafrænt, í gegnum kerfi Reiknistofu bankanna sem í daglegu tali kallast heimabanki.” Frumvarp sent til þingmanna í tölvupósti.
09:45 Fyrningarleið fiskveiðiheimilda. Eftirfarinn tölvupóstur sendur á framkvæmdastjóra Landssamband Íslenskra Útvegsmanna og afrit á stjórnendur bankanna. “Vinsamlegast athugið að kvóti allra fiskveiðiskipa verður fyrndur að fullu á næstu 10 árum. Ef þið treystið ekki til þess að stunda rekstur yðar á þeim forsendum eruð þið beðnir um að skila prókúru (og lyklum) að fyrirtæki ykkar til viðkomandi bankastjóra.”
09:50 Stutt kaffihlé. Aðrir ráðherrar mæta í stjórnarráð.
10:10 Öllum ráðherrum gert að senda eftirfarin skilaboð til stjórnenda viðeigandi ríkisstofnana: “Virðulegi embættismaður. Héðan í frá er þér gert að fara í einu og öllu að lögum og reglum sem gilda um stofnun yðar. Þar með talið er að reka stofnunina innan þess ramma sem fjárlög leyfa. Treystir þú þér ekki til að gera slíkt er þér hér með boðið að segja tafarlaust upp og þiggja viðeigandi laun á uppsagnarfresti, þó aldrei lengur en 6 mánuði”. (t.d. gæti Menntamálaráðherra byrjað á Páli Magnússyni á RÚV).
10:30 Ráðherrum gert skylt að eyða restinum af deginum á meðal þegna sinna með heimsóknum í fyrirtæki, skóla og á fjölfarna staði. Þar skal ráðherra ræða við fólk og spyrja þau hvað þeim finnst mest aðkallandi vandi, hvað þegnunum þyki helst þurfa að gera (t.d. skuldavandi heimila). Og heimaverkefni ráðherra verður að koma með þá punkta á næsta fund ríkisstjórnar sem verður haldinn á sama stað og á sama tíma, degi síðar.
10:40 Orðunum “skjaldborg” og “heimili” flett upp í Orðabók Menningarsjóðs. Ritari tekur ljósrit af blaðsíðum og dreifir til allra fundarmanna. Fundi slitið.
10:45 Ritari klárar fundargerð, hún samþykkt og send með tölvupósti á fjölmiðla.
11:00 Blaðamannafundur haldinn á tröppum Stjórnarráðuneytis og almenningur upplýstur um morgunverkin.
Fyrir hádegi ættu stjórnvöld okkar að vera komin langt með að leysa mest aðkallandi mál dagsins og þá er hægt að nota restina af deginum til að leysa Icesave.
Endurtakist eftir þörfum.
Comments
4 Tjáningar to “Gestablogg – góður dagur í Stjórnarráðinu”
Tjáðu Þig!
Addi: Benito hefði fílað þig í tætlur. Gallinn er sá að hér er þingræði en ekki einræði framkvæmdavaldsins, þó herrarnir og frýrnar þar á bænum virðist sjaldnast átta sig á því. Fyrr en of seint.
Það virðist vinsælt sport þessa dagana að hnjóða í þingið fyrir að reyna að standa í lappirnar og sinna skyldum sínum. Sem því hefur þó aðeins gengið svona og svona sakir kúgunar stjórnarinnar á þingmönnum sínum, sem virðast ímynda sér að þeir sitji í skjóli ríkisstjórnarinnar en ekki öfugt.
Norræna velferðarstjórnin hefur bakað sér flest sín vandræði ein og óstudd, einmitt með því að fara fram með ámóta gerræði og yfirgangi og þú ert að stinga upp á. Í veigamestu málum þjóðarinnar var ekki hirt um að afla stuðnings í þingflokkum stjórnarinnar, hvað þá að leitað væri yfir ganginn til stjórnarandstöðunnar. Ég hirði ekki einu sinni um að nefna hvort hún hafi reynt að leita fulltingis þjóðarinnar.
Jóka og Grímur geta sent endalausar óskir og fyrirskipanir til rannsóknarnefndarinnar, en þeim verður ekki ansað. Nefndin hefur erindisbréf sitt frá Alþingi, ekki stjórnarráðinu.
Þau geta líka sent út frumvörp á færibandi (þó þeim hafi nú ekki veist sá starfi léttur til þessa), en það gerir þau ekki að lögum eins og dæmin sanna. Þau geta jafnvel sent þau út með hótunum, því ekki auðnast þeim Steingrími og Jóhönnu að nota persónutöfra sína til þess að vinna skoðunum sínum hylli.
Það breytir ekki hinu að þau þurfa að fá meirihluta þingsins til þess að samþykkja þau og lögin þurfa að standast stjórnarskrá. Öll þau dæmi sem þú nefndir eru vafa undirorpin hvað það áhrærir og varða svo miklum hagsmunum að það færi allt fyrir Hæstarétt. Hann gæti tekið 2-4 ár að komast að niðurstöðu í hverju málanna. Í þeim sem hann næði niðurstöðu.
Lýðræðið kann að vera svifaseint, en það er skárra en hin ósköpin.
— — —
Svo myndu vafalaust einhverjir spyrja: Er ómögulegt að vandinn liggi í stjórn þeirra J & S frekar en hjá alveg öllum hinum?
Þetta verður samt svona þegar ég er orðinn keisari. Eina sem þarf til þess er minniháttar stjórnarskrarbreyting…
Þú ert ekkert smá snöggur að koma vörnum fyrir þessa norrænu velferðarstjórn þína! Kannski er þetta rétt hjá þér, við skulum ekkert vera að sækjast eftir afköstum eða árangri, það eru stórlega ofmetin fyrirbæri.. Helst vil ég fela Logos og KPMG stjórn landsmála, pakkað í lakkríshúðaðan leyndarhjúp.
Og ég hef svar við spurningu yðar; vandamálið liggur vissulega hjá J&S, þau gera ekki rahhgat!
Að sjálfsögðu er það ríkisstjórnar að *framkvæma*. Ríkisstjórnin er framkvæmdavald, alveg eins og lögreglan. Alþingi er löggjafarvald og á ekkert með að reyna framkvæma.
Ríkisstjórnin á einmitt að stjórna og reka ríkið (eins og fyrirtæki) *innan þess ramma sem löggjafarvaldið býður, en ALLS EKKI aðeins eftir beinum skipunum í formi lagasetninga*, alveg eins og að lögreglan bíður ekki eftir lagasetningu um að það megi handtaka þig hafirðu drepið einhvern, þá á ríkisstjórn ekki að bíða lagasetningar eftir að laga til eftir glæpi sem hafa verið framdir.
Þannig að það þarf ekki að breyta neinu svo nemi að þetta gæti gengið eftir.
Hitt á þó einnig við að ef ríkisstjórn gengur lengra en heimildir gefa tilefni til, þá getur hún að sjálfsögðu bakað sér skaðabótaskyldu, sem þýðir að stjórnin verður að stíga varlega til jarðar.