Tíminn og bloggið

Tíminn forðast mig. Enda veit hann að ég háma hann bara í mig án þess að tyggja. Allt í einu fer að koma að sumarfríi. Og ég var rétt að byrja vinnuárið. Og ég kann ekkert annað ráð til að hægja á tíma en að horfa á Kallakaffi™, og það er tvíeggjað sverð.

Að öllu óbreyttu get ég bara ferðast áfram um tímann á nokkuð jöfnum hraða. Hratt. Ekkert sýnir mér þann hraða betur en krakkarnir mínir, sem vaxa svo í brakar.

Sumarfríið verður stutt þetta árið, til að fagna blessunarlega ágætri verkefnastöðu í því sem hr. Haarde kaus einhverntíman að kalla tímabundna efnahagslægð. Sem er vel orðað. Því að hún er tímabundin. Bundin við nokkur ár í mesta lagi. Reyndar er hún um 12 millibör, sem er ansi mikið fyrir lægð.

Ég ætla að fara að ráði vinkonu minnar og taka mér sumarfrí í bloggeríinu. Nema mér detti eitthvað sniðugt í hug. Ég örblogga á Twitter bæði .:hér:. og .:hér:.

Hafið það gott í sumar og megi æðri máttarvöld að eigin vali blessa það sem þið takið ykkur fyrir hendur.

Breiðið út boðskapinn:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • email
  • del.icio.us
  • RSS
  • Google Bookmarks
  • LinkedIn

Comments

2 Tjáningar to “Tíminn og bloggið”

  1. baun on June 6th, 2009 7:39 pm

    habbðu það gott gæskur, og familían líka:)

  2. Ósk Gunnlaugsdóttir on August 10th, 2009 4:40 pm

    Maður verðurt geðveikt mjór af því að blogga.

Tjáðu Þig!