Sjálfshátíð á Alþingi
Og Samfylkingin sagði bleh bleh bleh en Sjálfstæðisflokkurinn blah blah blah og Framsókn sagði meh meh meh og Vinstri hreyfingin – Grænt framboð punktur is sagði buh buh buh. Og Borgarahreyfingin sagði döh döh döh.
Fínt hjá ykkur, fariði nú að vinna, það er nóg að gera hjá ykkur.
Star Trek
Er það bara ég sem engdist um í sætinu mínu og vildi skipta um falskar tennur í Leonard Nimoy í snarhasti? Kannski fá sett sem væri svona tveimur númerum minni, og pössuðu?
Ojjjj.
Ónefndur söngvari að nafni Toggi benti mér á hvað oft er hægt að endurbæta lög sem eru bara svona la-la og gera úr þeim ódauðleg meistaraverk, og sendi mér hjálögð tóndæmi sem sönnun um slíkt. Eða ekki. Sumt á bara að banna með lögum, og verja með haglabyssum.
Ál-líkkistur myntkörfulána
Skoðunarferð um nokkur af sálarlausustu nýju hverfunum sem fésólgnir verktakar reistu á methraða um hvippinn og hvappinn á höfuðborgarsvæðinu í áköfum og lostafullum forleik kreppunnar gaf af sér eftirfarandi skoðun mína:
Þau ljótu álkassahús sem enn er ekki búið að fylla af greiðsluaðlögun og myntkörfum skal rífa samstundis og setja tré í staðinn. Þau sem eftir standa séu framtíðararkitektum Íslands víti til varnaðar.
Reykjavík er að verða ískyggilega ljót borg, mest út af nýbiggingum þar sem arkitektum var skipað að teikna gráa álkubba, því að þá væri ódýrast að byggja.
Var að taka eftir því að ég skrifaði nýbyggingum með einföldu. Það er svo flott villa að hún fær að standa. Svona eins og Kridd og Kysa.
Ég set ekki mynd með þessarri færslu af virðingu við lesendur. Þið vitið hvaða hús ég er að tala um.
Góðar stundir.
Til sölu: Nýra
Til sölu temmilega lítið notað nýra sem hefur bara fengið einn nýrnastein. Áhugasamir hafi samband.

Að vera töff
Það er mikil vinna að vera töff. Það verður að byrja snemma. Hér má sjá mynd af mér að vera töff í níunda bekk, í því sem sannarlega má leiða líkur að að sé ljótasti jakki í heimi. Ég er að fara að hitta fólkið sem ég var með í níunda bekk í kvöld. Það verður sögulegt.

Með og á móti ESB – Aðalatriðin
Það eru margar ástæður til þess að við ættum að íhuga af mikilli alvöru inngöngu í Evrópusambandið.
Fólki hefur verið tíðrætt um smáatriði eins og afnám glæpsamlegrar verðtryggingar, gjaldmiðil sem flýtur sjálfur án kúta og björgunarvesta og þá staðreynd að möppudýrum í Brussel gengi betur að stjórna landinu okkar fullum í fríi en úrkynjuðu og helspilltu glæpamönnunum sem við höfum falið það hlutverk í blindni um árabil.
Einhverjir kunna að nefna að við gætum losnað undan lögbundnu vaxtaokri og haftastefnu í innflutningi á landbúnaðarvörum. Og þá nálgumst við sannleikann, og merg málsins.
Innganga í ESB mundi nefnilega tryggja okkur aðgang að ætum tómötum allan ársins hring.
Vatnsósa bastarðarnir sem við köllum tómata hér á landi munu leggjast af með öllu, enda mun enginn sem hefur bragðað alvöru tómata vilja sjá þá nema sem refafóður, og þá fyrir refi sem hafa verið óþekkir. Garðyrkjubændur gætu einbeitt sér að þeim hlutum sem þeir gera betur.
Íslenskir tómatar eru 103% vatn og bragðast eins og ekki neitt. Þeir þroskast undir rafmagnsljósi, og fá ekki að sjá sól nema í gegnum skítuga glugga. Það er þjóðþrifa og mannréttindamál að tími þeirra sé liðinn.
Þess vegna vel ég ESB.
