Meðmæli dagsins:

Þetta finnst mér flott.

Nýyrði í krepputalið…

Orðið ‘útrásarvíkingur’ hefur verið notað til að lýsa gráðugum viðskiptajöfrum sem eiga það sameiginlegt að hafa drullað stjarnfræðilega upp á bök sín sökum blindrar græðgi og látið þjóðina þrífa það.

Nú er komið að þeim tímapunkti að mikil umræða hefur skapast um góðvini þessara auðmanna, ástkær seðlabankastjóri okkar hefur haldið því fram (og örugglega réttilega) að margir þeirra hafi hagnast umfram eigin verðleika í undangengnu fári.

En það vantar tilfinnanlega nafn á fólk sem sopið hefur úr kaleik óheillrar græðgi í boði víkinganna sjálfra.

Don Pedro kemur til bjargar með nýyrði sem er í senn rammíslenskt og lýsir vel þessum bestu vinum aðal:

Auðsuga er sá sem lifir og nærist á auði annarra, þiggur mútur og fyrirgreiðslur úr höndum misóheilla viðskiptajöfra, og launar ofeldið oft með dyggri trúmensku við óheilt fólk og málstaði.

Það var allt.

Framsókn does it again…

Kosningaloforðið er komið. 20% afskriftir húsnæðislána og skulda fyrirtækja.

Þumbaskapurinn er svo ótrúlegur að mænan í mér hringsnýst af aulahrolli.

Mikið verður gaman fyrir okkur sem rekum lítið skuldsett fyrirtæki og neituðum að taka þátt í vitleysunni að fá að moka flórinn fyrir þá sem yfirfjárfestu, og vera í samkeppni við þá eftir að þeir hafa fengið skuldir sínar afskrifaðar. Þetta er eins sanngjarnt og… ja ég veit ekki, kannski fullur 20 feta gámur af ósanngjörnum og illa hugsuðum framsóknarhugmyndum.

Það versta við þetta er að þau eiga eftir að sópa inn atkvæðum á þessu. Árangur áfram, ekkert stopp, á leiðinni út úr þessu landi.

Gleðilegan konudag! Og munið…

Sitt af hvoru tagi…

Smá dót sem ég fann á þessu interneti…

Ritskoða takk:

Rétt val á ljósmynd er lykilatriði

Og…

Aðgerðir strax…

Ef það á að byggja nýtt Ísland á gjaldþrota rústum þess gamla, má ég þá biðja um að það verði lagt bann við hafnarboltamyndum í sjónvarpinu? Í alvöru, RÚV hlýtur að hafa keypt hafnarboltamyndir fyrir marga milljarða.

Íslensku tónlistarverðlaunin…

Jepps.

Vona að fólk fatti að ég er að reyna að tengja þetta við Medialux.

Kyrr kjör

Jafnvel seingáfuðustu aðdáendur þessa vefseturs hafa tekið eftir því að hér hefur verið frekar rólegt upp á síðkastið. Bloggið heillar ekkert rosalega núna, það er orðið einhvernskonar sollur fyrir kreppuröfl, og ég nenni ekki að taka þann slaginn. Auk þess hefur verið verulega mikið að gera hjá mér, sem er blessun.

En það þýðir ekki að það sé ekki hægt að fylgjast með því sem er að gerast hjá mér í beinni. Ég minni ykkur á heimasíðu Medialux, Twitter Medialux og Tumblr Medialux, þar sem við munum nú setja upp efni jafnóðum frá daglegum störfum okkar . Allt að gerast. Bara ekki hér :-)

Blessi ykkur, meira síðar.

Listamannalaunasugur

Er einhver með á hreinu hvort þiggjendum listamannalauna ber að skila einhverju til baka til þeirra sem styrkja þá, eða er bara um að ræða óskilyrta gjöf frá skattgreiðendum að þeim forspurðum?

Var að spá í að það gæti verið rosa næs að fá Hallgrím Helga til að skrifa fyrir mig hnyttin jólakort, fyrst hann er í vinnu hjá mér.

Veit samt ekkert hvað ég á að gera við Ólaf Hauk.

Listasafn Einars Jónssonar – Gott í kreppunni

Ég er engin alvöru listasuga. Mikið af því sem vill kalla sig list fer fyrir ofan garð minn og sunnan, vekur ekki hjá mér neinar tilfinningar nema hneykslun á hæfileikaleysi.

En Ísland á og hefur átt í gegnum tíðina alvöru listamenn sem vekja hjá mér sterk hughrif. Einn af þessum listamönnum er Einar Jónsson myndhöggvari.

Í gær opnaði safnið hans að Hnitbjörgum eftir vetrardvalann, og ég fór ásamt spúsu og yrðlingum að njóta þess sem þar var að sjá. Það er langt síðan ég hafði farið inn á sjálft safnið, þótt garðurinn hafi verið vinsæll áfangastaður hjá mér með hvolpræksnið mitt fyrir nokkrum árum.

Það er skemmst frá því að segja að heimsóknin sparkaði á braut allri kreppu úr hjartanu, og endurnýjaði kynni mín við kraftinn og fegurðina sem finna má í verkum Einars.

Ég mæli heilshugar með því að þið gerið ykkur ferð á safnið og njótið þess sem það hefur upp á að bjóða. Húsið sjálft er hönnunarafrek, og það er einhver andi þarna inni sem virkaði hreinsandi á mig.

Myndin er stolin af myndasíðu Kristínar Sig á flickr.com