Geisp.
Vísir.is greinir frá því í fréttum sínum að Pete Doherty sé orðinn vísindakirkjutrúar.

Smá hugvekja
Það gildir um páskana sem og aðrar stundir að maður á alltaf að tjalda til öllu því sem maður á til til að hjálpa öðrum ef maður getur. Eins og þetta fólk gerði. Synd með Ózonlagið.
Ehmmm…..
Þetta er ekki Bin Laden strákar. Þetta er Nazinger páfi.

Ingvar vinur minn…
Hér eru 3 hressandi myndir af vini mínum Ingvari Valgeirssyni. Hann er alger toppnáungi, og fær því myndaseríu dagsins sér til heiðurs. Ég er ekki alveg viss um hvar þriðja myndin er tekin.



Fjandakornið…
Ég hef ánetjast þessarri mynd.
Toldyouso
Upphaldsbloggarinn minn skrifaði færslu fyrir rúmu ári. Hún er .:hér:.
Hér eru nokkrar stuttar tilvitnanir:
Svo er hægt að taka Evrulán. Vill einhver taka Evrulán núna þegar íslenska krónan fer að hrynja? Ekki ég.
Ég hef við þetta að bæta að fasteignaverð MUN VÍST lækka. Prófið að spyrja einu sinni einhverja aðra en bankafólk og fasteignasala, þá sem lifa af því að kjafta upp markaðinn.
Svo ætti að endurreisa Íbúðalánasjóð úr öskustónni sem raunverulegan valkost sem hjálpar fólki að eignast þak yfir höfuðið. Á vöxtum sambærilegum við það sem tíðkast erlendis. Og afnema glæpsamlega verðtrygginguna.
Þetta stendur allt og meira til.
Hjéddna…
Nánast takmarkalaus ást mín á tónlist umvefur óhugnalega mörg stílbrigði og stefnur.
Bland í poka diskarnir sem ég brenni fyrir bílinn minn innihalda Debussy og Van Halen, í gegnum argasta þungajazz og aspartampopp og rúnkrapp af MTV. Ef það er gott, þá líkar mér það. Ég hlusta á töluvert mikið af tónlist sem er skelfilega hallærisleg. Ég hef aldrei nennt að eltast við að vera með kúl tónlistarsmekk. Það er of mikil vinna, og ekki sérstaklega þakklát.
Margir af “meisturunum” sem alvöru tónlistaráhugafólk á að elska snerta ekki neitt við mér.
Einn af þessum “meisturum” er Bob Dylan, sem nú er á leið hingað. Ég hef séð Bob Dylan á sviði. Mér fannst það ömurlegt. Falskur söngvari gaulaði óskiljanlega úr takti við rammfalskan gítar. Mér rann ísvatn milli skinns og hörunds, og mig heltók löngun til að tækla nokkra öryggisverði, ryðjast upp á svið og stilla gítarinn hans. Sem mér fannst reyndar að hann ætti að kunna eftir öll þessi ár. Hann ætlaði heldur aldrei að hætta að spila, það þurfti nánast að bera hann af sviðinu gaulandi einhverjar nástæðar ambögur.
Það má sá sem allt veit vita að ég hef reynt. Ég er búinn að hlusta á algeran helling af dóti sem maðurinn hefur ælt út úr sér. Ekki lítill katalógur þar á ferð. Misgott. Sumt mjög þolanlegt. En ekki missi ég legvatnið yfir honum. Mér finnast reyndar mörg lög eftir Bob Dylan æðisleg. Nánast undantekningalaust í flutningi annarra þó.
Það eina sem gleður mig við komu Dylans er að það gerir Örn Úlfar ánægðan, og það á hann svo sannarlega skilið.

37
Vaknaði 37 ára, útsofinn og með höfðinglegan morgunverð í andlitinu. Búinn að fá langþráða crêpe pönnu og miða á Clapton í félagsskap föður míns í afmælisgjöf. Hvað get ég sagt? Lífið leikur við mig.

Föstudagur.
Toggi Popp og Stína Fína bjuggu til lítinn Breiðhylting í nótt, ritstjórn bíður eftir myndum, en árnar heilla.
Því alls óskylt er þetta, eitt af þessum Youtube atriðum sem verður aldrei, aldrei, aldrei þreytt. Ég set það aftur og aftur á fóninn. Kannski af því ég elska tónlist og fegurð.
Skrattinn á veggnum
Get ekki annað en verið sammála Doktornum þar sem hann vælir yfir hversu óbúanlegt þetta land er að verða. Og er ég þó jákvæður stráklingur. Við sökkum bara ansi mikið.
Stjórnvöld hafa algerlega misst tökin á hagstjórninni, og virðast ekki vera á leið að laga eitt né neitt. Á kannski að viðhalda ruglinu til að geta selt aðgang að ESB sem reddingu út úr klúðrinu?
Ég er í alvörunni búinn að setja brottflutning erlendis á langtímaplanið mitt. Nei við vaxtaokri og skuldaáþján. Þetta er bara nútíma þrælahald.
Önnur pæling. Skattadagurinn var 21 júní þetta árið. En hvenær ber vaxtadaginn upp? Hvenær er meðal Íslendingurinn búinn að vinna fyrir sköttum og vöxtum og farinn að vinna fyrir sjálfan sig? Í Október?
PS Afsakið vælið, en það er erfitt fyrir föðurlandsvini að landið þeirra sé í svona miklu bulli.
“Vinir”
Hvað gera “vinir” manns þegar maður kvartar undan ofgnótt Bjarka í vingarði sínum?
PS Ég er búinn að skipta í Adium, allir rólegir.

úps

Sir Lancelot gazed fondly into the soft blue pools of Lady Guineviere’s eyes and gently held her mutant third hand. Wait, what?
Tekið af Photoshop Disasters