Punktablogg

Það er bara eitt verra en lélegur tapari, og það er tignarlaus sigurvegari. Bara svona almennt. Alls ekkert skot á Friðrik Ómar Annan.

Gestakokkarnir á Domo refsa íslensku lambi lengst inn í palettuna á manni á Food & Fun. Namm. Kíkið. Óviðjafnanlegt.

Næsta vika verður annaðhvort livechanging stuff fyrir mig sem ég segi barnabörnunum frá… eða ekki.

Ég spái því að Júrókeppnin verði haldin í Svíþjóð vegna óstöðugleika í Serbíu.

Ég spái því að bankarnir séu að taka fylleríin sín út á viðskiptavinum sínum.

Ahhh.

Náði furðufréttinni á Bylgjunni. Dagurinn þar með opinberlega kominn af stað.

Ekki fleiri Bjarka, takk

Ég er mjög þakklátur fyrir alla þá Bjarka sem eru vinir mínir. Nú er hinsvegar svo komið að það er ekki pláss fyrir fleiri Bjarka í lífi mínu. Því frábið ég mér náinn vinskap við alla sem bera þetta nafn héðan í frá. Því miður.

Gleðilegan Valentínusardag

Ég trúi ekki á Heilagan Valentínus frá Terni, en ég trúi á ástina og óska ykkur öllum þverhandarþykkum slatta af’enni. Því alls ekki óskylt er hér mynd af konunni sem ég elska.

Spennandi

Ég veit ekki hvað þið gerðuð í gær.

Sjálfur eyddi ég kvöldinu við Esjurætur með ljómandi fínan áhyggjuhnút í maganum í félagsskap um 35 vaskra björgunarsveitamanna sem voru að leita að 18 ára bróður mínum og 3 vinum hans.

Drengirnir lögðu upp á fjallið í blíðskaparveðri klukkan 2 um daginn í um 1-2ja tíma ferð og lentu í éli uppi á fjalli og villtust. Þegar þeir komu niður, heilir á húfi, var klukkan orðin tíu um kvöld, og þeir slæptir og kaldir eftir 8 tíma ráf í kulda og vosbúð.

Það þarf ekki að fjölyrða um að fólk hafði áhyggjur af drengjunum þar til þeir voru fundnir, þótt samband við þá í gegnum farsíma væri til staðar. Það þarf ekki mikið til að svona aðstæður verði lífshættulegar.

Ég hef verið innan um björgunarsveitarfólk við störf áður, og ber umtalsverða virðingu og lotningu fyrir störfum þeirra. Það breyttist síst í gær.

Ekki minna þótti mér til viðmóts þeirra koma, strákarnir voru eðlilega sneyptir yfir því að það hefði þurft her manna og þyrlu til að finna þá í sunnudagsgöngutúrnum þeirra. Björgunarsveitarmennirnir gerðu lítið úr því, sögðu að þeir hefðu gert allt rétt, og ekki stefnt sér í tvísýnu, og að út á þetta gengi starf þeirra, og að fólk sem ferðaðist og stundaði útivist lenti jú bara stundum í ógöngum. Það væri eðli málsins samkvæmt.

Síðan skutu þeir að drengjunum að ef þeir vildu ferðast í góðum félagsskap ættu þeir að skoða að taka þátt í björgunarsveitarstarfinu, nokkuð sem ég veit að þeir íhuga alvarlega.

Reiðilestur yfir strákunum hefði verið óþarfur. Allt sem fólki hefði dottið í hug að segja vissu þeir, og þeir fóru hvorki að vanhugsuðu máli né sérstaklega illa búnir af stað.

Allt er gott sem endar vel.

Fyrir okkur sem upplifðum þetta sjálf, hefur síðan verið forvitnileg skemmtun að fylgjast með súrum atvinnutuðurum landsins, moggabloggurunum, blogga um fréttina úr eldhúsum úthverfanna. Án þess að vita nokkuð um málið. Fyllandi í allar eyður úr bitrum eigin rössum. Breytandi ferðinni í jeppaferð nýríkra þegar svo hentar. Get ekki annað sagt en að glerhörð og fávís dómharkan í miðju staðreyndarleysinu er með ólíkindum.

Moggabloggið er Útvarp Saga internetsins.

Skora á ykkur að skoða þessa frétt og velja “bloggað um fréttina” við hlið fréttarinnar. Hér líka.

PS
Hef fyrir víst að svona umræða fari mjög fyrir brjóstið á sjálfu björgunarsveitarfólkinu. Þau vilja ekki að fólk hiki við að hringja og biðja um aðstoð áður en það verður um seinan, og þeim þykir umtalsvert skemmtilegra að sækja lifandi fólk.

PSS
*Það eina góða við Moggabloggið er Ingvar. Ef ekki fyrir hann væri ég búinn að láta loka því.

Bilde

Gott mál hjá 365!

365 töpuðu einungis tvöþúsund tvöhundruð áttatíu og þremur milljónum á síðasta ári. Gott mál. Þeir töpuðu næstum SJÖ ÞÚSUND MILLJÓNUM á síðasta ári. Eða eins og Ari Edwald orðar það: “Rekstrarárangur á árinu 2007 sýnir að félagið er í sókn bæði er varðar tekjuvöxt og afkomu grunneininga sem staðfestir viðsnúning á rekstri félagsins frá fyrra ári”.

Litla fyrirtækið mitt skilaði arði 2007. Og hlýtur þar af leiðandi að vera miklu verðmætara en 365. Samt er ekkert í fréttunum um að ég sé snjallari kaupsýslumaður sem geti rekið fyrirtæki sem skilar þúsundum milljóna betri afkomu en fjölmiðlarisinn sívinsæli. Ætla að hringja í Viðskiptablaðið og benda þeim á þetta snöggvast. Eitthvað eru menn ekki alveg að fylgjast með…

Volæði

Margir sjúkdómar hrjá nútímamanneskjuna. Nú þjáist ég af þessum hér. Sem er versta mál.

Jepps

.:Hér:. er naglinn algerlega hittur á höfuðið af miklu öryggi og nákvæmni.