Að gefnu tilefni…
Opinn þráður um markaðsmál og auglýsingar. Hvað fer í taugarnar á ykkur. Hvað finnst ykkur vel heppnað? Hvar á ekki að auglýsa? Hver á ekki að auglýsa? Eiga að vera auglýsingar á RÚV? Eiga að vera auglýsingar í barnatíma RÚV?
Takk SMÁÍS
Langar að koma þökkum á framfæri TIL SMÁÍS fyrir að eyðileggja fyrir laskaða útlandagátt HIVE með því að drepa innlent niðurhal. Nú eru torrentfíklar allir að hala niður fjarlendis frá, heimasíður hægar og FTP niðurhal ónýtt. Meiriháttar.
Ég líki gjarnan viðskiptum við þessu blessuðu fjarskiptafyrirtæki við hlaðborð þar sem þú mátt borða eins mikið og þú getur í þig látið, en verður að hafa golfkúlu í hálsinum á þér á meðan.
Ókeypis endalaust niðurhal með bandvídd sem er eins og módem…?
Ef maður kaupir mjólkurfernu sem er bara með lögg í botninum, getur maður skilað henni. Um leið og viðskiptin hætta að vera áþreifanleg hefst okrið. Heyrirðu það Dr. Gunni? OKRIÐ SAGÐI ÉG :-=
HIVE er allavega ekki málið. Nú er ég afskaplega fullsaddur.
Smekklegar auglýsingar
Ég er búinn að vinna í auglýsingabransanum í fjölmörg ár.
Ég hef fylgst með hvernig sífellt fleiri leiðir hafa verið fundnar til þess að ná athygli okkar. Ég hef horft á og jafnvel tekið þátt í landvinningum markaðsfyrirtækja inn á nýja markhópa, sífellt yngri, sífellt harðari sala.
Bankar reyna að sölsa til sín viðskiptavinum frá fæðingu, í síðasta lagi fermingu, og ef tryggingarfyrirtækin fá að ráða, valhoppa börnin okkar um merkt þeim í bak og fyrir. Erlendar skyndibitakeðjur auglýsa grimmt í barnatímum til að geta selt mör og transfitusýrur í trúðslíki.
Fáir staðir í heiminum eru nú óhultir fyrir skilaboðum um hvað við eigum að kaupa og af hverju. Man til dæmis einhver hvernig auglýsingalaus íþróttavöllur lítur út? Gott og vel, þetta hefur verið þróunin, og hvort sem mér líkar eða ekki. Það er ekki mikið sem hægt er að gera til að sporna við að verða fyrir áreiti auglýsinga. Væri kannski meira að segja hræsni hjá mér, sem lifi á auglýsingum að vera eitthvað að blóta því.
Fyrir nokkru féll þó síðasta vígið. Ég var þar, og langar að deila því með ykkur.
Ég var við skírn í Grafarvogskirkju. Óvenjulega falleg og hressandi skírn, laus við alla helgislepju og ekki spillti fyrir að það var verið að skíra lítinn gorm í nærfjölskyldunni minni.
Að aðalathöfnini lokinni dregur presturinn fram svuntu sem hún gefur foreldrunum. Á svuntunni er mynd af kirkjunni, og tilgangurinn að sjálfsögðu að minna á kirkjuna. Mér fannst þetta bara sniðugt.
Síðan heyrði ég orðin “…smekkurinn er í boði Vís. Og hér er smá bæklingur um öryggi barna fyrir mömmu og pabba til að skoða heima”.
Mér rann samstundis kraftmikill aumingjahrollur um mænu. Gat þetta verið? Gat verið að sú helgistund þegar saklaust barn er blessað í kristinna manna tölu á altari Guðs hafi þótt tilvalið tækifæri til að plögga tryggingar?
Það er kannski fimmaurabrandari að tala um “smekkleysi” í þessu tilfelli, en ég fékk algert óbragð í munninn.
Sýndist presturinn reyndar ekki vera meira en svo hrifin sjálf.
Þið verðið að afsaka ef ég hljóma svolítið hneykslaður á þessu, en fjandakornið, einhverstaðar verður að vera friðhelgi, einhverstaðar verður fólk að bera gæfu til gefa grið fyrir markaðsáreiti. Þetta finnst mér meira að segja sem auglýsingamanni.
Opna umræðuna. Er þetta bara væl í mér? Eða á að sparka faríseunum út úr musterinu, og jafnvel nokkrum vel völdum stöðum í leiðinni? Eins og leikskólum?

Spek
3 vikur án líkamsræktar, fór í dag, og ég er sílspikaður. Og jólin að koma. Í Svíþjóð. Þar sem ég ligg bara í sófum og ét og les.
Goddemolissjón.
Það verður hægt að rúlla mér. Synd, ég sem var á góðri leið með að verða DILF.
Pheeeeww.
Fölur
Fattaði um leið og ég horfði á keppnina um Herra Ísland að ég er fölur og gugginn. Þarf að fá mér mykjudreifara eins og strákarnir.
Vá…
Ég er að skrifa 4 tonn á nýju síðuna mína, sem ég opna í næstu viku. Á meðan er hér eins fátæklegt umhorfs og í aðdáendaklúbbi Steingríms Njálssonar.
Ég veit aftur á móti að tímabundnar mútur í formi kynþroska og fullþroska lemúrs kaupa mér smá grið, þótt enn sé langt til páska…

Eldist vel…

Meðmæli
.:Hér:. er gott að vera.
Lykt dagsins…
…er brunnin innyfla-rotnunar-ofsuðu-ógeðsfnykur.
Ég prísa mig sælan að þurfa ekki að borða það sem verið er að elda.
Hoj
Ég er ekki búinn að gleyma ykkur. Hjálagt er smá grín. Meira var það ekki.

Pólitísk “rétthugsun”.
“Neyðarkallinn” er kona. Vei. Stórt skref fyrir jafnréttisbaráttuna. Eða ekki.