Sönnun

Kynþokki og góð tónlist finna hvort annað yfirleitt. Þó eru á því nokkrar undantekningar. Steely Dan til dæmis.

En hér er sönnun:

1975_abba_w_swedish_flag

Jájájá. Ókey.

Allt í lagi þá. Ég fór í leikhús í dag.

Þið sem þekkið mig sem alræmdan leikhúshatara með ofnæmi fyrir íslenskum ofleik, vitið hversu óvenjulegt þetta er.

Ég, sem hef lagt fram frumvarp til alþingis um að öll verk Samuels Becketts verði bannfærð, þeir sem setji þau upp réttdræpir, og þeir sem fari á þau dæmdir til að horfa á þau.

Ekki bara fór ég í leikhús. Það sem meira er, ég skemmti mér stórvel. Þykkt plott, fín músík, og prump.

Abbabbabb er besta leiksýning sem ég hef farið á síðan ég stormaði út af Mávahlátri í Borgarleikhúsinu, fussandi og sveiandi, og sverjandi dýra eða að ég mundi ekki stíga fæti í leikhús aftur. Mávahlátur var þá þriðja tilgerðalega og stórömurlega leikritið í röð.

Svo bregðast krosstré…

Heilræði

Grapewire rokkar og MugiBoogie er brilljant. Meira um það .:hér:.

Hreinskilni

Photo

Goddemolisjón

Hvern hefði grunað að þýskararnir gætu .:verið fyndnir?:.

Áfram…

Í dag tapaði landsliðið í fótbolta fyrir ördvergríkinu Liechtenstein.

Ég hef alls engan áhuga á fótbolta, en þetta sparkaði í þjóðarstoltið á mér.

Statistík. Liechtenstein státar glæsilegri höfðatölu upp á um 33.000 skattgreiðendur.

Þannig fór leikurinn 27-0 miðað við höfðatölu.

Enn kannski á maður bara að vera jákvæður. Þótt við höfum tapað fyrir Liechtenstein, þá eigum við enn fínan séns í Vatíkanið. Kannski ekki fínan, en einhvern. Kannski ekki einhvern, en…

Nú held ég bara með kvennalandsliðinu.

Funny0236

Um Útvarpsstjóra

Hvað mótíverar umræðu um laun útvarpsstjóra í Baugsmiðlunum? Sýnist hann fyrsti maðurinn sem er verður launa sinna í þessu starfi í heillangan tíma…

MultiTalent

Ég er enn eins og 5 ára krakki þegar ég er spurður hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór. Vel alltaf svona 5 hluti. Þannig er vinnulífi mínu háttað núna, og mér finnst það æðislegt.

Alltaf eru einhverjir spekingar að segja mér að maður geti ekki verið bestur í öllu, maður verði að velja eitthvað eitt og reyna að standa sig í því.

Mér finnst þetta algert kjaftæði.

Maður á að gera allt sem maður getur, og helst örlítið meira til.

Fjölbreytileiki gerir lífið skemmtilegra. Og þarfnist þið sönnunar á því að hæfileikar mætra manna geti legið á mörgum sviðum, smellið þá .:hér:.

hmmmm

Ég er búinn að þusa svo mikið um viðgerðir og verkstæði síðasta mánuðinn að dóttir mín svaraði aðspurð að hún byggi á “Verkstæðastræti”. Börn eru milljón.

Note to self:

…ekki ljúka símtölum með því að segja vinalega “skíttu í þig” þegar 3ja ára barnið manns situr við hliðina á manni. Það getur krafist útskýringa.

Týpískt.

Yoko kemur og bandið hættir.

Villi og Adrían

Þegar ég skipti um bleyju á syni mínum í dag, varð mér hugsað til Villa Vill, og hvað hann ætti sameiginlegt með litla barninu mínu. Jú. Báðir voru búnir að drulla upp á hnakka.

Og hvorgur verður í næstu borgarstjórn ef það er til eitthvað réttlæti.

Næsta Síða →