Vefbóndi

Á milli þess sem ég vinn í heimasíðu fyrir fyrirtækið mitt og Portfolio síðunni minni dunda ég mér í Facebook, og er því tímabundið að vanrækja ykkur hér. Það er ekki hægt að gera allt í einu. En þið eigið allt gott skilið, og því fáið þið afsökunarbeiðni fyrir letina og sæta mynd.

Tilfinningar…

Er að horfa á áhrifaríkan heimildarþátt um líf og baráttu hárgreiðslufólks. Þátturinn heitir Blow Out, og er örugglega margverðlaunaður.

Ekki hafði ég hugmynd um að líf þessa þarfa fólks væri svo margbrotið og tilfinningaríkt. Ég ætla að fylgjast vel með núna, og fá mér púrtvínsglas í hvert sinn sem Jonathan fer að gráta mannatárum.

Ekki til að vera með nein leiðindi, en mér finnst Jói Fel mega taka sig á og ekki vera svona léttúðugur þegar hann er að baka. Meira drama.

Antin041806

HÍHÍ

Var að finna uppáhalds uppáhalds uppáhalds símahrekkinn minn. Hann er bara of góður. Hassan eru snillingar sem gera símaat og eru almennt til vesensins í Svíþjóð.

Símaat

Þegar einkaþoturnar sofa…

…liggja þyrlurnar andvaka.

Þessi flugvöllur má alveg fara að fara mín vegna. Sérstaklega ef kvótakóngar frá Vestmannaeyjum þurfa alltaf að vera að hringsóla yfir hverfinu mínu á þyrlunum sínum.

Maðurinn ungi…

…sem hér sést í faðmi stóru systur sinnar, gengur undir nafninu Adrían Ísar Pétursson.

Þar hafið þið það.

Boys, boys, boys….

Jú, blessað barnalánið heldur áfram, því Gunni bróðir ungaði út syni í gær líka, með örlítilli aðstoð frá konunni sinni. Við vorum skemmtilega nokk báðir settir á 12 ágúst, en mínum lá á, og prinsinum hans Gunna ekki.

Feðraorlofið mitt er mun meira feðra en orlof. Ég er eins og útspíttuð þeytipíka að halda heimilinu gangandi.

Sonur minn dafnar vel. Ef hægðir eru mælieining á velmegun, þá sprengir hann alla skala. Í hvert skipti sem ég tek hann upp, opnar hann aðeins augun, brosir meltingartruflanabrosi og hraunar og úðar í bleyjuna sína.

Ég hef á tilfinningunni að hér sé á ferðinni alvöru maður. Hann er með breiðar smiðshendur, ekki gítarputtana mína, hugsar bara um brjóst, og mér kæmi ekki á óvart þótt hann væri farinn að munda hamarinn snemma. Sem er gott, því það vantar fólk sem gerir alvöru gagn í þessum heimi.

Og, nafnanefnd heimilisns hefur komist að niðurstöðu. Við náðum að koma öllum á óvart, og höfum fengið nokkra svona “jaaaaá” svipi í kynningarherferð nafngiftarinnar. Erum samt fullsátt, og finnst nafnið passa snúðnum. Nafnið verður gert opinbert hér innan skömms.

En mynd dagsins er af Emmu Ósk, litlustu frænku minni, að skipta um bleyju á bróður sínum.

20070816121737_14

Hjúkk…

Sá í fréttum að Íslendingum vegnaði vel í Heimsmeistaramóti íslenska hestsins. Mér létti mjög við það.

#$%&/()=)(/&%

Það er erfiðara að finna góð nöfn á stráka en stelpur.

Sko…

Ég var búin að hóta konunni minni því að ef hún fæddi um verslunarmannahelgina, þá þyrfti afurðin að heita Helgi ef hún væri strákur. Verslunarmanna-Helgi, til aðgreiningar frá öðrum Helgum. Nú eða bara Helgi P. En ég er eitthvað ekki að ná að selja þetta. Hvað segið þið?

About a Boy

100_3721

100_3773

100_3727

100_3752

100_3723

100_3810

100_3807

Jepp, it’s a boy…

Staðfestist hér með móttaka á 1 stk. karlkyns manneskju af allra flottustu gerð. Móður og barni heilsast eins og best verður á kosið. Myndir um leið og ég get.

Áhyggjur af framtíðinni…

Dóttir mín notar hvert tækifæri til þess að rífa af sér öll föt og ganga um nakin. Má einu gilda hvar hún er eða hvernig veður er. Tilburðir hennar minna einna helst á flugfreyju á árshátíð. Ég vona að þetta eldist af henni áður en hún verður unglingur, annars verða þau ár mjög erfið.