Vísindahornið

Vísindahorninu barst bréf sem hljóðar á þessa leið: Kæra Vísindahorn™, Hvaða áhrif mundi það hafa á tónlistarheiminn ef Janet Jackson mundi gleypa Bjarna Ara?

Kærar þakkir,

Þorfinnur.

Kæri Þorfinnur, hér er svarið þitt í tveimur jafngóðum liðum.

Fyrst skoðarðu þetta…
…og svo þetta.

Tay Zonday er maðurinn

Hitað upp

Hér má sjá nokkra af uppáhaldstónlistarmönnunum mínum hita upp fyrir spilamennsku á festivali í Svíþjóð á dögunum. Takið eftir því hvað hljómborðsleikarinn, lengst til vinstri, er áreynslulaus og afslappaður í upphitun…

Heat

Nálgunarbann

Ég vil láta banna “Simply the Best” með Tinu Turner. Er einhver með mér?

Þú snýrð öfugt!

Erfingi II situr rígfastur á rassinum í móðurkviði. Einbeittar aðgerðir til að snúa barninu rétt hafa ekki skilað árangri. Ilkvittnir hafa hvíslað út um annað munnvikið í laumi að barnið hafi nú þegar erft ratvísi föður síns. Það vona ég ekki. Það er rétt svo að ég hafi ratað inn í þessa vídd í fæðingu, og síðan þá hef ég verið að villast.

Afsakið hlé…

…en innan skamms kem ég til baka með skemmtilegar hljómsveitarferðasögur og fréttir af framgangi mála og horfum í fólksfjölgunardeild fjölskyldunnar.

Hle

Hetja fellur frá

TF-Sif er sokkin í sæ. Ég flaug stutt flug í henni einu sinni. Sem betur fer var erindið ekki alvarlegt. Kynntist líka nokkrum af þeim sem mönnuðu hana. Nokkrum af þeim sem leggja líf og limi reglulega í hættu í mannskaðaveðrum til að bjarga öðrum. Sem betur fer meiddist enginn af þeim í kvöld.

22 ár í þjónustu, hundruðum mannslífa bjargað, TF-SIF var ekki bara hrúga af varahlutum, heldur bjargvættur með sál.

800pxas365n_dauphin_2_of_the_icelan

Mánudagur á ný

Helgin fór í að halda upp á konurnar mínar. Sú stutta fékk íslensku afmælisveisluna sína, og sú miðjustóra var fermd á Argentínu og henni byrluð steik í kok í góðum félagsskap.

Það er auðséð að það styttist í að konan mín gjóti, og þótt að það sé tæpur mánuður eftir af ásettum tíma, þá hrýs mér hugur við fjögurra daga ferðalagi erlendis sem framundan er.

Stórt tónlistarfestival í Schweden bíður, og konunni verður uppálagt að sitja heima með krosslagða fætur og hreyfa sig sem minnst.

Kjör-staðir

Allir hlutir og öll neysla eiga sér sinn kjör-stað, þar sem hámörkun upplifunar er náð.

Ís er bestur í Eden. Staðreynd.
Djass hljómar best á dauflýstum og reykmettuðum búllum.
Harðfiskur er bestur í grænni fjallshlíð, sérstaklega ef maður er í lopapeysu.

Hagamel með Jóni Ólafs á maður að kaupa í Melabúðinni. Þar á hún heima. Það er mér ljúf skylda að minna ykkur á að verða ykkur út um eintak, svo þurfiði ekki að kaupa íslenska plötu fyrr en eftir rúmlega hálft ár, þegar nýja Togga-platan kemur. Nógur tími til að safna.

Annars verð ég að segja að það eina sem ég sakna virkilega frá því að flytjast úr 107 yfir til Reykjavíkur aftur er Melabúðin. Bestu kaupmenn á horninu í heimi. Punktur. Heimilisbókhaldið saknar Melabúðarinnar samt ekkert.

Mynd dagsins er eðlilega af Jóni Ólafs, fyrrverandi nágranna mínum.

Úff

1986sml
Haldið upp á helgina með hor, hita og hósta. Eilífar þakkir til konunnar í Lyf og Heilsu á Eiðistorgi sem fyrir mistök sendi mig heim með saltupplausn í stað nefdropa. Takk.

Um greind…

Það eru til margar leiðir til þess að skilgreina greind, en það eina sem er alveg víst er að hún leysist upp í áfengi.

Nafnasamkeppni

Nú styttist óðum í got, og ég þarf nafn á nýja afkvæmið. Góð verðlaun í boði fyrir gott alþjóðlegt nafn. Hef enga hugmynd um kyn. Takk, ég vissi að ég gæti treyst á ykkur.