Pétur Jónsson – Don Pedro?
Það er í svona tilfellum sem ég styð notkun auðkennislykla. Það er einhver að reyna að yfirtaka mig.
Ákall!
Við erum of fljót að fyrirgefa. Við mótmælum of lítið. Svik og glæpir gleymast hratt.
Því bið ég ykkur og ákalla réttlætiskennd ykkar: þótt við þolum lögverndað vaxtaokur, séum búin að gleyma olíufélags-samráði, Landsvirkjunar og Síma-samráði, svikum tryggingafélaganna og fyrirgefa þjófnað dæmds eyjamanns:
GLEYMUM EKKI KALLAKAFFI™.
Aldrei hefur peningum skattborgara verið stolið á eins ósvífinn hátt og svo lítið látið í staðinn. Höldum uppi minningu þeirra sem misstu tíma við áhorf og fá aldrei aftur.
Munum Kallakaffi™

Íþróttaskór
Ég skil ekki fyrir mitt litla líf hvers vegna íþróttaskór þurfa að kosta hátt í tuttugu-fökkings-þúsund krónur – jafnvel þótt þeir séu handgerðir af litlum börnum í Indlandi. Þetta eru bara sambræddar plast-tægjur og smá tjull?
Ekki eins og þetta séu tæki eða gítarar…

Lag Dagsins…
Pæling dagsins…
Ein af stærri spurningunum sem við getum spurt okkur í allri umræðu um kynjamun hlýtur að vera: Af hverju keppa konur í sér flokki í skák?
Trallalla
Konan mín er ólétt.
Bróðir minn og konan hans eiga von á barni á sama tíma og við.
Vinur minn var að fá mjög góðar fréttir í dag.
Ég á tilnefningu til Lúðursins.
Ég er að vinna frekar skemmtileg verkefni og hef nóg að gera.
Ég er að fá stærra og betra húsnæði fyrir stúdíóið mitt.
Sólin skín í heiði og dagarnir lengjast.
Colin er ekki bilaður.
Á maður bara ekki að syngja og tralla? Ég held það.
Í tilefni klámhátíðar…
Í tilefni klámhátíðarinnar sem allir eru að slá sig til riddara vegna, smelli ég hér upp gamalli mynd af einni hetjunni. Hér er Ron gamli, ljótasti hobbitinn í klámbransanum ásamt mér og Adda. Þessa mynd settum við á gömlu heimasíðuna okkar ásamt smá fréttatilkynningu:
REUTERS HEADLINES:
FILMUS PRODUCTIONS: CHANGE OF STRATEGY
Filmus productions, a leading production company in Iceland, has recently been bought by media investor Ron Jeremy. During first board meeting, held in a strip club near Reykjavik, Mr. Jeremy announced his future plans for Filmus: “Commercials are boring, and not as profitable as many other sectors in the filmmaking area. We will now focus on more profitable areas of media production, namely porn. Casting in Iceland is easy, the girls are up for it, and the true dedication of the local talent to the work at hand is admirable.” This is why I choose Filmus as a creative platform for my new series of low-budget films entitled “The puffin’ dottirs of love”
Er nú ansi hræddur um að svona gríni væri nú snúið upp í andhverfu sína eins og stemmarinn er í dag. Fólk er eitthvað að taka sig svo hátíðlega. Ekki ég. Ég er bara bjáni.

Vonbrigði
Það er ekki heillaskref fyrir Ísland að senda lag í Evróvisjón án þess að hafa Pétur Örn innanborðs. Að öðru leyti skemmti ég mér konunglega yfir sirkusnum. Ég tek þetta ekki alvarlega, finnst þjóðarheiðurinn ekki vera að veði. Þetta á bara að vera gaman og fyndið. Úrslitin komu mér á óvart.
Nú róum við okkur smá…
Eigum við ekki að slökkva eitt augnablik á lýðskruminu, kæla aðeins á tilfinningakláminu, og róa okkur aðeins?
Fólk sem starfar í klámiðnaði gerir það löglega í sínum löndum, og nýtur alvög sömu mannréttinda og pípulagningamenn. Áður en við hlaupum út með kyndlana okkar og heykvíslarnar, ættum við ekki að hugsa okkur um í 2 mínútur og sjá hvort ekki er til annar málefnaflokkur sem betur ætti skilið athygli okkar og orku?
Hver er annars tilgangurinn með að mótmæla klámmyndaráðstefnu á íslandi? Að koma í veg fyrir að klám sé framleitt? Einmitt. Að hella sér yfir hótel, sem auðvitað hýsir alla þá sem þurfa hýsingu? Eða – að baða sig í ódýrri sjálfumgleði og berja sér á brjóst með sjálfskapaðri réttlætiskennd?
Að draga fólk í dilka eftir því hvað það kýs að starfa við er nefnilega óréttmætt og hrokafullt. Sama hvort okkur kann að líka við starf fólksins eða ekki. Mér er til dæmis meinilla við stétt innheimtulögfræðinga, en ég mundi ekki eitt augnablik láta mér detta í hug að meina þeim hótelvist, eða vega að mannréttindum þeirra. Meira segja þeir hafa tilfinningar, eiga fjölskyldur, og eiga skilið að njóta lífsins þar sem þeim sýnist.
Sá yðar sem syndlaus er, hendi sér í sjóinn.
Ég hef talað.
Fitness-Fréttir
Ég er búinn að vera mjög duglegur að fara í ræktina. Ef þetta heldur svona áfram fer ég að setja lóð á stangirnar á árinu, og þá er engin leið að vita hvar þetta endar.

Allt vitlaust.
Það er allt á öðrum endanum í Svíþjóð. Það var verið að hækka stýrivexti Seðlabankans þar. Upp í 3,25%. Svartsýnir spá að stýrivextirnir geti endað í 4% á árinu. Þetta mundum við Íslendingar nú ekki láta bjóða okkur upp á.
Hjálp í nauðum
Það styttist í Konudaginn. Hér eru tillögur að gjöfum sem heilla.