The English Patient

Ég þekki ekki marga sem hafa gaman af því þegar bílarnir þeirra bila. En ég er nú einu sinni ekki eins og fólk er flest.

Eins og komið hefur fram áður, þá er ég eigandi/tilsjónarmaður heldri Range Rover bifreiðar, hverrar rafkerfi var framleitt af ískrandi þunnum bretum á mánudegi á hlaupaári. Bíllinn heitir að sjálfsögðu Colin.

Mér þykir stórkostlega vænt um þennan bíl, og hann er mikill karakter. Á fimmtudaginn fer hann inn á verkstæði. Bilanalýsingin er eftirfarandi: Bíllinn er með andsetnar samlæsingar, og heldur að hann sé strætó (mikilmennskubrjálæði?).

Hvað varðar fyrra meinið, þá lýsir það sér þannig að þegar ég er sestur inn í bílinn, þá læsir hann sér og aflæsir trekk í trekk. Poltergeist style. Stundum læsir hann mig inni. Stundum tekur hann vélina úr sambandi því að hann heldur að ég sé að stela sér. Þetta býður upp á margskonar fimleika.

Ég held að um sé að ræða framliðinn viðgerðarmann eða bílasmið sem sé að reyna að segja mér eitthvað. En í staðinn fyrir að skrifa það á skjá bíltölvunnar, reynir hann að morsa það með samlæsingunum. Aldrei skáti, aldrei skáti, og ég kann ekki mors.

Hvað strætókomplexinn varðar, þá skartar bifreiðin forláta loftpúðafjöðrun sem hægt er að hækka og lækka að vild. Nú ber svo við að einhver þétting er farin, því bíllinn er farinn að pústa af sér eins og strætó. Svona loftbremsudæsi eins og heyrist í vörubifreiðum þegar þær staðnæmast.

Mér finnst þetta rosa gaman, og spyr alla farþega hvort þeir vilji skiptimiða. En þetta gæti nú haft eitthvað með öryggi að gera, svo ég læt laga það.

Mynd dagsins er af næsta Colin, Colin II. Ég býst við að eiga fyrir honum árið 2019.

Varðandi Eurovision…

Og þið sem haldið að þetta blogg verði notað til þess að hrauna yfir Eurovision keppnina og lögin í henni, þið hafið rangt fyrir ykkur. Ég get ómögulega gert það án þess að helsæra fólk sem mér þykir vænt um, og maður gerir heldur ekki grín að þeim er minna mega sín. Ég segi bara: ÁFRAM PÉTUR ÖRN!

Og nú VERÐ ég að fara í bókhaldið…:-)

Hjálp!

Þekkiði tilfinninguna? Þið verðið að gera eitthvað sem er ómanneskjulega óskemmtilegt. Eitthvað sem er sálartærandi og leiðinlegra en fimm árgangar af Vikunni lesnir upphátt af smámæltum stamara.

Maður finnur sér til óteljandi afsakanir, allt frá tánaglanögun til upplýsingaöflunar um sögu handklæða. Verður að fá sér gott kaffi. Blogga svolítið. Endurraða kiljunum sínum. Er ekki tilvalið að taka til í iTunes?

Svo gefst maður upp. Bítur á jaxlinn. Kveikir á Excel. Fer í bókhaldið. Bryður tölur og slær inn uppplýsingar um fylgiskjöl. Maður verður að gera það sem maður verður að gera, segja þeir fjarlendis.

Sendið mér hlýja strauma, ég þarf þá.

Accounting

Stenst þetta ekki…

Alvöru orðsendingar frá foreldrum skólabarna í Tennessee

My son is under a doctor’s care and should not take PE today Please execute him.

Please exkuce Lisa for being absent she was sick and i had her shot.

Dear school: please e csc’s john being absent on Jan. 28, 29, 30, 31, 32 and also 33.

Please excuse Gloria from jim today. She is administrating.

Please excuse Roland from P.E. for a few days. Yesterday he fell out of a tree and misplaced his hip.

John has been absent because he had two teeth taken out of his face.

Carlos was absent yesterday because he was playing football. He was hurt in the growing part.

Megan could not come to school today because she has been bothered by very close veins.

Chris will not be in school cus he has an acre in his side.

Please excuse Ray Friday from school. He has very loose vowels.

Please excuse Pedro from being absent yesterday. He had (diahre, dyrea, direathe), the shits. [Words in ( )'s were crossed out]. (Yeah, like you know how to spell it!)

Please excuse Tommy for being absent yesterday. He had diarrhea, and his boots leak.

Irving was absent yesterday because he missed his bust.

Please excuse Jimmy for being. It was his father’s fault.

I kept Billie home because she had to go Christmas shopping because I don’t know what size she wear.

Please excuse Jennifer for missing school yesterday. We forgot to get the Sunday paper off the porch, and when we found it Monday. We thought it was Sunday. (This makes perfect sense to me!)

Sally won’t be in school a week from Friday. We have to attend her funeral.

My daughter was absent yesterday because she was tired. She spent a weekend with the marines.

Please excuse Jason for being absent yesterday. He had a cold and could not breed well.

Please excuse Mary for being absent yesterday. She was in bed with gramps.

Gloria was absent yesterday as she was having a gangover.

Please excuse Brenda. She has been sick and under the doctor.

Maryann was absent December 11-16, because she had a fever, sore throat, headache, and upset stomach. Her sister was also sick, fever and sore throat, her brother had a low grade fever and ached all over. I wasn’t the best either, sore throat and fever. There must be something going around, her father even got hot last night.

Ahhh. Gaman.

FM957

Selfoss var heiðraður í gærkvöldi á Hnakkablóti FM-liða. Spilamennskan gekk held ég bara ljómandi vel. Gaman að sjá hvað Nylon gengur vel. Set upp hlekk þegar ég hef fengið efni.

1168356470f

Tíhíhí

Þorgeir Ástvaldsson átti stórfínt mismælgi í gær þegar fór að tala um “…saklaust fólk sem situr uppi með súrt ennið”.

Gott stöff.

Fjúkk

Mér finnst auðvitað voða gaman að Ísland hafi unnið Frakkland í handbolta, en ég er ekki næstum eins glaður og allt markaðsfólkið sem á tilbúnar tugmilljóna auglýsingaherferðir sem hefði þurft að henda ef ekki hefði farið svona vel í dag. Skál.

Hits and misses

Ég missti af spilamennsku með blúshljómsveitinni minni vegna anna. The Bumcats fóru í sjónvarpstökur án mín og koma fram hjá Jóni góða innan skamms. Góðu fréttirnar eru að það þurfti engan minni gítarleikara en Björgvin Gíslason til þess að fylla í skó mína. Hann rétt reddaði þessu víst :-)

Á morgun gefst ykkur aftur á móti gráupplagt tækifæri til að sjá uppáhaldsgítarleikarann ykkar án þess að þurfa að hreyfa ykkur of mikið eða fara út úr húsi. Ég er nefnilega að spila með Togga Popp á Hnakkaverðlaunum 957 sem verða sýnd í beinni á Sirkus, eins og óþolandi niðurteljarinn hefur gefið okkur í skyn nú í 2 vikur. Sjáumst í sjónvarpinu!

Mynd dagsins er úr auglýsingu sem ég var að klára.

Kompás…

Segið hvað þið viljið en þátturinn í gær var hrollvekjandi og dæmi um alvöru rannsóknarblaðamennsku til bætts samfélags.

Tímasparnaður?

Ég hef ekki mikinn áhuga á handbolta, en ég hjó eftir því að þjóðsöngurinn okkar var spilaður á 350 km hraða fyrir leikinn, til að spara Þjóðverjunum tíma. Það fer í taugarnar á mér sem hef dálæti á verkinu. Ef ekki er hægt að spila þjóðsöngva með reisn, er því betur sleppt en að technoa sig í gegnum þetta án sæmdar né virðingar. Og hananú. Þjóðverjaræksni. Skamm.

Eurovision

Eins og allir sáu, þá gersigraði æskuvinur minn Pétur Örn Eurovision í kvöld. Ef hann fer út, þá lofa ég að birta hér af honum mynd sem hann veit ekki einu sinni að sé til. Það verður stuð. Guðs hraða, þú rauði keisari…

Bjarta hliðin…

Jafnvel svartsýnasta fólk getur ekki neitað því að í heimi þar sem Pete Doherty fær Kate Moss, getur allt gerst.

Næsta Síða →