Gleðilegt Nýtt Ár…
Vegna fjölda fyrirspurna finnst mér rétt að geta þess að mottukeppnin gengur vel, og ég er sigurstranglegur, jafnvel þótt sænski doktorinn noti öll trikkin, eins og maskara og flókinn kantskurð. Set upp myndir af okkur saman innan tíðar. Fáir eru þeir karlmennirnir sem ekki verða girnilegri við smá mylsnugeymslu…

Mexíkó á sjittlistann…
Eitt hérna sem fer allverulega í taugarnar á mér, og hefur gert í þó nokkurn tíma:
ÁSTKÆRA YLHÝRA
Ripp, Rapp og Rupp
ENSKA
Huey, Dewey and Louie
SPÆNSKA
Jorgito, Juanito y Jaimito
SLÓVAKÍSKA
Hui, Dui, Lui
EISTNESKA
Hups, Tups ja Lups
FINNSKA
Tupu, Hupu ja Lupu
ÍTALSKA
Qui, Quo e Qua
SÆNSKA
Knatte, Fnatte och Tjatte
INDÓNESÍSKA
Kwik, Kwek, dan Kwak
Allir farnir að sjá mynstur?
Hvernig leyfa fjárans Mexíkóarnir sér þetta þá:
Hugo, Paco y Luis!
Algert stílbrot.
Ég missi svefn yfir svona dóti.

Uppgjör
Jólin tókust.
Mér tókst nánast að standa við Jólamanifestóið mitt. Næstum allar jólagjafir voru handgerðar. Þar var fyrst og fremst um að ræða kryddolíuna “Vampýruvarann” sem ég og Frikki bróðir framleiddum í massavís, ásamt handgerða konfektinu okkar.
Nokkrir vel valdir fengu ættleiddar geitur í Uganda.
Og ég er saddur.
Nei. Hjálp. Ekkii……..
…og heimurinn varð aldrei samur…
Kæru lesendur,
Ekki einungis eruð þið fólk ársins, heldur fáið þið líka mínar allra bestu jólakveðjur með þökk fyrir komuna í litla vefkofann minn. Hafið það best um hátíð ljóss og friðar.

Tsékkit
Takk, Glitnir
Mig langar til að nota þennan vettvang til þess að þakka viðskiptabankanum mínum, Glitni, fyrir jólagjöfina sem mér var að berast, nefnilega hina ómissandi kertasníkis-skífu, sem kom í hellings sérprentuðum umbúðum með ljóði eftir Sjón.
Víst gætu illkvittnir sagt að oddhvöss málmskífan sé beinlínis hættuleg börnum, svo ljót að hún gagnist ekki til skrauts, og að sú staðreynd að kertasníkir prýði hana takmarki notkun hennar við einungis hluta ársins.
Þeir gætu einnig bent á að ALLIR notendur bankans væru frekar til í afslátt af færslugjöldum eða hreinlega að gefin væri gjöf í þeirra nafni til góðgerða en að þurfa að halda á svona óskapnaði, og tíma varla að henda honum þar sem hann hefur örugglega kostað helling af peningum. Þeir gætu kallað þetta sóun af verstu gerð.
En ekki ég. Ég er kurteis og vel upp alinn, og þakka pent fyrir mig.

Hætta í aðsigi…
Dr. Karl Karlsson, sprenglærður vísindamaður í mínum kunningskap, hefur bent á hættuna sem er samfara flóðum og vatnsgangi á Suðurlandi.
Selfoss er stærsti geymslustaður Íslands fyrir vetnisperoxíð, en það er efnið sem er notað til þess að gera strípur. Fari Selfoss undir vatn, eru miklar líkur á að allt grunnvatn á Suðurlandi mengist um ókomna tíð. Börn þar gætu jafnvel fæðst með strípur, sem mundi að sjálfsögðu þýða efnahagslegt hrun á svæðinu. Vonum það besta.
Jepps.

XMAS
Spilaði með Togga á XMAS á NASA í gær. Ekki troðfullt af fólki, en nokkuð þétt í salnum, frábær stemning framanaf, en salurinn gjörsamlega ærðist þegar Drengjakór Breiðholts gekk á svið klæddur kyrtlum og með logandi kerti. Hátíðlegra verður það ekki. Tókum með þeim Sexy Beast við frábærar undirtektir. Skal reyna að finna mynd á morgun til að sýna ykkur.
Raunir lóðanartara
Það versta við að vera orðinn svona helmassaður (búinn að fara 5 sinnum í Laugar) er að konur stara svo mikið á mig.
Ég kann illa við þessar kvenrembulegu girndaraugngotur frá einhverjum lostafullum hormónagæsum sem líta bara á mig sem eitthvað heltannað og vöðvastælt kjötstykki, en ekki sem mannveru með tilfinningar. Óþolandi. Maður vill bara fá frið þegar maður er að narta í lóðin.
Þéttur jólastemmari
Fór á Lúsíuhátíð í gær með Svíanum™ og HálfSvíanum™ ásamt foreldrum mínum.
Skemmst frá því að segja að það var ausið yfir okkur hálfu tonni af vinalegum jólastemmara, Lúsíuhátíðin enda hönnuð fyrir börn, og Lúsíukór Svía í útlegð á Íslandi spannaði allt aldurssviðið frá pínulitlum skoffínum upp í konur á besta aldri í hvítum kyrtlum (passa að skrifa með ypsiloni) og kertum.
Litla sparðið mitt söng með af mikilli innlifun jólalögin, og bræddi þannig alla nærstadda. Ekki síst föður sinn sem er mjög viðkvæmur fyrir slíku, enda söngstjóri heimilisins.
Svíarnir kunna jólin, það verður ekki tekið af þeim. Synd að þeir skuli vilja byrla manni saffranbollur á jólunum, en þær bragðast einmitt eins og naflakusk. Ekki spyrja mig af hverju ég veit hvernig naflakusk bragðast. Þetta er bara samlíking.
