RÚV

Mér hlýnaði svo um hjartaræturnar að sjá Pál Vilhjálmsson og Glám & Skrám á skjánum aftur að ég ætla ekki að segja styggt orð um afmæli RÚV.

Ég er reyndar búinn að skemmta mér ágætlega í afmælisveislunni, og hef bara notað Spaugstofuatriðin til þess að setja í uppþvottavélina og stoppa í sokka.

Tóndæmi dagsins

Tóndæmi dagsins er skemmtilegt. Hér eru leiðbeiningar:

Náið í eins góð heyrnartól og þið getið fundið. Smellið þeim á toppstykkið á ykkur. Hlustið.

Munið, heyrnartól. Ekki svindla. Lokið gjarnan augunum.

.:Tóndæmi dagsins:.

Viðbót;

Ég kynntist þessu dóti árið 1994, og það var gaman að rifja það upp. Hér er meira:

Tóndæmi 2
Tóndæmi 3
Fróðleikur

Dag skal að kveldi lofa…

Lauk framanaf fúlum gærdeginum með sérdeilis prýðilegri hljómsveitaræfingu. Bandið hans Togga er að taka á sig mynd, og farið að hljóma fínt. Ég er ansi hræddur um við komum til með að valda mikilli frygð. Bæði erum við jú nefnilega klárir og svo aldeilis sérlega fallegir. Það segir mamma mín allavega. Ekki lýgur hún.

Annars er föstudagur í árunni á mér.

Dagar…

Dagar eru misjafnir. Ekki til að vera með neina neikvæðni, en því fyrr sem þessum grábölvaða degi lýkur, því fyrr er honum aflokið. Allt sem ég hef snert í dag hefur skjögrað um rangsælis á brotnum afturfótunum og farið 3 hælsár skref afturábak fyrir hvert áfram.

Annars er ég hress.

Þangað til deginum lýkur hafið þið þetta að horfa á, þetta er skemmtilegt:

128718778

Tími til að tengja

Frumraunir og tæknitest í gangi, og litla stúdíóið mitt getur frá og með næstu viku farið að mala út gullplötum. Sem þýðir að swenglish kennslustundin sem allir hafa verið að bíða eftir verður tekin upp innan skamms. Byrjið að telja niður.

Jepps

Kynþokki er ekki ofmetinn

NFS – the revenge

Fréttatími NFS skartar nú ógeðslega ljótum fréttaborða frá vísi.is sem fer hrein óhugnalega í taugarnar á mér. Eins og nú megi allt og litlu sé að tapa. Mér liggur ekki svona mikið á fréttunum, ég skal bíða á meðan þið segið þær…

Sögusagnir…

Hef heyrt sögusagnir af því að Breiðholts sómi, sverð þess og skjöldur komi til með að bjóða upp á spennandi hluti á vefsetri sínu á næstunni. Hægt er að gera vitlausari hluti en að gjóa augum til þess og bíða í ofnæmi.

Fyrirbæn

Godspeed, Richard Hammond. Láttu þér batna

Testing…

Er að víra, tengja og raða í nýju vinnustofuna mína. Er búinn að gefa henni nafnið “Handarkrikinn”. Þetta ágætlega stóra herbergi á ekki séns í dótið sem ég er búinn að sanka að mér í gegnum tíðina, enda vita allir að sá sem deyr frá flestum tökkum, vinnur.

Handarkrikinn umkringir mig í 360 gráður með eikarhúsgögnum, urmli af tækjum og hljóðfærum. Ég hef sterka tilfinningu fyrir því að þarna verði gerðir góðir hlutir. En nú er ég þreyttur, og með harðsperrur í vöðvum sem ég vissi ekki af, og átti örugglega ekki að nota til að bera dót með.

Farinn í bað, en bið voðalega vel að heilsa ykkur.

PR Páfagarðs…

Nazinger páfi mætti fara mun hægar í að skjóta kjarnaoddum úr glerhúsinu sínu og saka önnur trúarbrögð um að fara með sverð að vopni. Ég skrifa þetta sem sérlegur áhugamaður um krossfarirnar og musterisriddara, sögu kristinnar trúar og valdabaráttu og sögu kirkjunnar frá stofnun.

Aumingja prelátínn sem var síðan sendur til að biðjast afsökunar hafði séð skemmtilegri vinnudaga. Súrt.

Shameless plögg

Hér er plata sem ég vil að þið kaupið ykkur fyrir peninga sem þið hefðuð annars eytt í vondar pizzur eða hælsærisplástra.

Ástæðan fyrir því að þið verðið að eignast gripinn, er sú að uppáhaldsgítarleikarinn ykkar spilar smá á henni og þið þurfið að kunna hana alla utan að þegar tónleikaserían hefst og þið setjið í ykkur balltennurnnar, komið ykkur fyrir í ykkar besta stússi og syngið helfrelsuð með eins og það sé enginn morgundagur.

Hér er síðan hans Togga

Næsta Síða →