bizzý

Ég má ekkert vera að þessu. Brúðkaup bróður á morgun, og svo beint upp í flugvél og til Sverige í frí. Óska lesendum mínum sumars. Og gæfu.

Á annars 5 ára brúðkaupsafmæli sjálfur. Óska mér til hamingju með það, og þakka konunni þrautsegjuna.

ble

Manndómsraunir

Ég vil ekki vera að væla, en það hlýtur að teljast andskoti hart þegar aðeins harðsvíruðustu menn og vígreifustu konur hætta sér út í sumarveðrið. Útlönd, here I come.

Yup

Ég er búinn að vera einn heima í tvær vikur, á meðan konurnar mínar sleikja sólina og 30 gráðurnar hjá ömmu í sænsku sveitinni.

Síðan þær fóru er ég bara búinn að hlusta á country.

Konan mín á örugglega eftir að opna hurðina til þess að fagna endurfundum við manninn sinn, en sjá í staðinn línudansandi redneck með Stetson hatt, í kúrekastígvélum og glysgjarnri satínskyrtu sem orð fá ekki lýst. Svo þarf ég að fá mér svona band um hálsinn með silfur-nautgripahauskúpu á. Það er vel kúl.

Ég sá reyndar “The Country Awards” í fyrra, og þótt ég sé anti-metró, þá dó ég mörgum sinnum inni í mér af hlátri. Ef einkennnisbúningurinn þinn eru gallabuxur, skyrta, stígvél og hattur, og þú eignast allt í einu fjórar billjónir dala af því lagið þitt “itsy-bitsy-heartbreak” varð vinsælt, þá er náttúrulega ekki um annað að ræða en að kaupa skyrtu úr demantapalíettum, gallabuxur úr kóaladúni og stígvél úr antilópuforhúðum. Sum dressin þarna voru verðlaunahæf út af fyrir sig. Svo við tölum ekki um hár.

Á kvöldin horfi ég á geimmyndir, en konan mín er með vægt bráðaofnæmi fyrir öllum myndum sem gerast í geimnum.

Þannig að þemað er Geimkántrí.

Alison Krauss er á fóninum núna.

Calcio…

Non me ne frega niente di calcio, ma dopo stasera devo dire…

FORZA AZZURRI!

Al diavolo con i tedeschi. Per sempre.