Heilræðabálkur

Mér er svo umhugað um markaðsfólk þessa dagana að ég ákvað að láta hér einn heilræðabálk í loftið. Nokkrar grunnreglur, og ábendingar um það sem betur má fara.

Vandið nafngiftir á vörum og vörumerkjum. Ekkert grefur eins mikið undan sölu og nöfn sem má misskilja.

Ekki nota Ósk Norðfjörð til að auglýsa kótilettur.

Ekki nota Jóa Sig til að auglýsa kótilettur, og EKKI undir neinum kringumstæðum fara að láta hann tala um hvað umbúðirnar utan um kótiletturnar séu meiriháttar.

Ekki láta fólk fara í bátsferðir í fráveitukerfi og skólplögnum ef þið eruð að fara að gera auglýsingu fyrir orkufyrirtæki, svona almennt. Varist einnig að benda á að orka komi úr fjöllunum þegar hálf þjóðin situr með Draumalandið í kjöltunni og vont álbragð í munninum.

Ekki nota auglýsingarnar ykkar til þess að benda á veikleika vörunnar. Til dæmis er ekki sniðugt, ef maður skyldi ætla að gera auglýsingu fyrir dagblað, að benda á það að til þess að sorpritið komi út þurfi að fella tré í fallegum skógum. Það er eins og að auglýsa kók með tannskemmdasögum. Virkar öfugt.

Fleiri heilræði væntanleg. Ókeypis.

Heimasíða dagsins

MK Media

Styðjum íslenskan iðnað.

Ákall til markaðsstjóra Íslands

Ágætu markaðsstjórar,

Fyrir tíu árum þótti mjög sniðugt að auka sölu gosdrykkja og bensíns með því að láta fólk kíkja í tappa, skrapa miða og vinna ruslvinninga sem kættu börn í 15 sekúndur og báru merki ykkar um víðan völl. Þetta var alveg málið. Eitt augnablik var ekkert markaðsfyrirtæki með markaðsfyrirtækjum nema vera með skafmiðaleik, happadrætti eða einhversskonar tombólu.

Nú, árið 2006, getur maður varla farið út í bakarí án þess að þurfa að kíkja á miða, skafa einhvern djöfulinn eða fylla eitthvað út. Maður gæti unnið rúnstykki!

Maður þarf að safna punktum, vera með í potti, og taka þátt í úrdrætti. Til að græða. Ferð til Kanarí. Afnot af ljótum bíl. Grill. og smárusl út í hið óendanlega. Aumt er það fyrirtæki í dag sem ekki er með a.m.k einn leik í gangi.

Bensínstöðvarnar eru með svo mikið í gangi að starfsfólkið hristir bara höfuðið og dæsir, þekkir ekki muninn á öllu þessu stimpleríi og skafíþróttum.

Ég gæti ælt í hringi. Þetta er svo svakalega búið.

Notið heldur peningana sem þið setjið í þessa leiki og markaðssetningu á þeim í betri alvöru markaðssetningu.

Annars er mér að mæta.

Pelli.

Fyrirsætuferillinn hafinn…

Ég hefði kosið að fyrirsætuferillinn hefði hafist fyrr, en betra er seint en aldrei. Einhverra hluta vegna eru engin risastór veggspjöld af mér í Calvin Klein þveng á stærstu torgum hins byggða heims.

En nú er þessi rússíbanaferð hafin, og ég orðin fyrirsæta, og hættur öllu öðru.

Næstu ár fara örugglega í ferðalög milli spennandi tískuborga, eins og Minsk, Haag og Hannover.

Stelpurnar í Eskimó eru núna með mig á einkanámskeiði í því hvernig á að varast hætturnar sem fylgja starfinu, sem eru auðvitað Búlemía, kynferðisleg partýmisnotkun og skert greind.

Þetta er vissulega spennandi, og ég átti aldrei von á þessu.

Hvað ætli Mörður segi?

Ég var að leggja lokahönd á nýjar forvarnarauglýsingar, og bíð nú í ofnæmi eftir því að Mörður Árnason kyngreini mig og dragi smekklega í pólitískan dilk eins og honum er einum lagið.

Nú veit maður allavega að Guðjón er bullandi sjálfstæðismaður. Vona að hann hafi verið meðvitaður um það sjálfur.

Biðin langa

Litla hljóðverið sem ég er að setja saman á tilvonandi vinnustofunni minni hefur verið pantað og greitt, og næstu 3 vikur fara í að telja niður eins og örvæntingarfullt lítið barn þar til allt er tilbúið og komið til mín.

Þar sem allt kemur saman í einni sendingu, má leiða líkur að því að það verði stærsti dótadagur í lífi mínu. Sem er gott. Mjög gott.

MMMmmmh tæki.

HM

Hmmm… Saudarnir mínir eru að lepja dauðann úr rotnum polli á botninum á H-riðlinum. Lítur ekki nógu vel út eftir tap á móti Úkraínu, 0-4. En Svíarnir hanga inni, þannig að ég hef enn lið að halda með þótt þetta sé öfugt við það sem ég vonaði. Go Saudis.

PardýPardý

Á sunnudaginn héldum við fyrirfram-svindl afmæli fyrir píslina, sem verður í Sverige á afmælisdaginn sinn og getur þá ekki haldið uppá daginn hérna heima.

Allt fór eftir áætlun, klassískt barnaafmæli átti sér stað, sykurtaugar þandar til hins ítrasta, og litla kellingin var orðin vita örmagna þegar allt var yfirstaðið, en náði þó að vera sæt og kyssa alla og þakka fyrir sig, föður sínum til mikillar ánægju. Faðir hennir þolir ekki ókurteis börn.

Afmæli fyrir börn á þessum aldri eru manndómsraun, svo mikið af skemmtilegu áreiti að vitað er að eitthvað verður að gefa eftir.

Alma2ara

 

Gríman…

Leikarar toppa allt.

Sönn Spök 2

Eagles may soar, but weasels don’t get sucked into jet engines.

Sönn Spök 1

Those who live by the sword get shot by those who don’t.

Hraðspól

Handrit – undirbúningur – stress – hlé – panik – nýtt handrit – stress – undirbúningur aftur – blautar tökur, erfiður dagur, vont veður – út í flugvél – hata Iceland Express – HATA STANSTED – Soho – vinna – Hamley’s – BabyGap – heim – klippa – djöflast – hlakkatilhelgar. Ahhh.

Þannig er þetta nú búið að vera meira eða minna. Barnaafmæli á sunnudag.

Næsta Síða →