Húsbóndaherbergið
Ef einhver þarna úti þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem getur reddað mér uppstoppuðum kóalabirni, þá er ég að leita.
Ég er nefnilega að hugsa um að byrja að safna í sarpinn til þess að geta komið mér upp góðu húsbóndaherbergi í framtíðinni.
Ég byrjaði að hugsa þetta á klassískum nótum. Stofna Chesterfieldsófasjóð, biðja tengdamömmu að hafa samband við veiðimennina í skóginum í Svíþjóð og fá hjá þeim elgshöfuð og dádýr.
Láta stoppa þessi látnu dýr upp þannig að allir sem stíga inn í herbergið haldi að ég geti snúið niður greifingja með annarri á meðan ég kyrki úlf með hinni. Verða mér síðan úti um leðurinnbundna bókakili til að fela lágstéttarkiljurnar mínar á bak við og stærsta harðviðarborð sem hægt er að hvíla tær á. Mhhh.
En það fór eitthvað í taugarnar á mér hvað þetta var allt fyrirsjáanlegt. Svo að ég fór að hugsa: Hvað með að safna frekar krúttlegum og sætum uppstoppuðum dýrum?
Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur? Kettlingar að leik. Selkópshöfuð á vegg. Undrandi mörgæs. Spörfuglahópur. Gáskafullur lemúr. Og svo auðvitað konungur krúsídúllana, Kóalabjörninn. Hinn heilagi gral krúttdýrasafnarans. Festur á grein og umvafinn eukalyptus. Temmilega hissa á svipinn, en samt pollrólegur og svolítið heimskulegur…
Ég er handviss um að þetta yrði ógleymanleg upplifun fyrir gesti. Og miklu notalegra að hvíla sig í en eitthvað drungalegt herbergi með hættulegum dýrum sem maður er hálfhræddur við.
Um leið og ég er búinn að redda þessu öllum smádýrum, vantar mig bara herbergið og húsgögnin og þá er þetta allt komið. Svona ber hugurinn mann hálfa leið!

Klukkiddíklukk
Fjögur störf sem ég unnið um ævina:
Síldarvinnslutæknir
Hljómtækja og sjónvarpsprangari
Gítarleikari í sveitaballahljómsveit
Myndabandaleiguráðgjafi
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Delicatessen
Airplane
The Kid
Top Secret
Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi á:
TopGear
The Fast Show
Black Adder
Allt D. Attenborough stöffið
Fjórar bækur sem ég held uppá:
Meistarinn og Margaríta
Hundrað ára einsemd
Hitchhiker’s Guide
Neuromancer
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Róm
Cagliari, Sardiníu
Bárugötu
Neshaga
Fjórar vefsíður sem ég heimsæki daglega:
gearslutz.com
mbl.is
aftonbladet.se
mercenary.com
Fernt matarkyns sem mér líkar:
Allt frá Austur Indíafjelaginu/hraðlestinni
Dádýrasteik að hætti tengdamömmu
Sænskar kjötbollur eldaðar af frúnni
Lamb grillað af pabba
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt:
Grafarholt
Ólafsvík
Pompeii
Dubai
Fjórir staðir sem ég heldur vera á núna:
Positano, Amalfi ströndinni
Amalfi, Amalfi ströndinni
Sorrento, Amalfi ströndinni
Vietri sul Mare, Amalfi ströndinni
Fjórar kynþokkafullar konur:
Penelope Cruz
Sofia Loren
Angelina Jolie
Jessica Rabbit
Skáld síðustu aldar…
…var kjörinn Vanilla Ice.
Hér eftir fer ljóðið Ice Ice Baby.
Ice ice baby vanilla
Ice ice baby (oh-oh) vanilla
Ice ice baby vanilla
Ice ice baby vanilla ice
Yo man let’s get out of here
Word to your mother
Ice ice baby too cold
Ice ice baby too cold too cold (x2)
Ice ice baby
Pimp my VW
Ég geng línuna
Það er bara Cash á fóninum þessa dagana. Á mér þann draum heitastan að Walk the Line fái Óskarinn fyrir hljóðvinnslu. Skrýtinn draumur atarna. Aldrei átti ég von á því að ganga út af bíómynd fullur lotningar fyrir Reese Witherspoon heldur. En, krosstré og allt það shitt.
Ég er búinn að fyrirskipa veikindabann í hálft ár á heimilinu eftir undangengnar flensur. Sérstaklega brýndi ég þetta fyrir 20 mánaða dóttur minni, en mér finnst hún hafa verið heldur áhrifagjörn í vírussýkingum á leikskólum innanhúss. Hún tók erindinu vel, og ég hlakka mikið til horleysisins.
MMMhhhh. Food&Fun að hefjast. Mhhhh. Verð að reyna að missa ekki af því í þetta skiptið.
Annars er ég eiturhress, og vona líka. Afsakið að ég eigi ekkert merkilegra að segja ykkur í dag.

Hugrekki
Það þarf meira hugrekki en orð fá lýst til þess að vakna, fá sér kaffi, og ákveða í rólegheitunum með sér að búa sér til að minnsta kosti 70.000 svarna óvini með því reyna að koma i veg fyrir að Silvía Nótt fari út (með Pétur Pylzugerðardreng í farteski!!!).
Magnað. Hvernig ætli dagbókin líti annars út hjá honum?
09:30 Reyna að fá leyfi til aftöku kettlinga á Ingólfstorgi (mjög óvinsælt)
10.00 Lobbía fyrir banni á bjór (mjög mjög óvinsælt)
10:45 Vinna í að fá Geir Ólafs lýstan þjóðskáld……..
12:00 Matur
13:00 Semja texta við lag…
Klóra úr mér augun…
Það er franskur maður með risastórt gult ennisband að dansa samkynhneigðan listdans á skautum í sjónvarpinu mínu. Af öllum viðbjóði og klámi sem hægt er að horfa á…
Samúel Örn Erlingsson er að kynna þessar hörmungar, og honum til fulltingis er einhver kona sem á örugglega að vera “sérfræðingurinn”. Það versta er að hún talar ekki, segir bara þurrt “já” þega Sammi bullar eitthvað. Svo koma gámastórar vandræðalegar þagnir. Mjög sætt.
Það er semsagt konudagur, og ég geri ekki einu sinni veikburða tilraun til þess að teygja mig í fjarstýringuna.
Hamarinn…
Fyrir þá sem hafa náð réttum aldri:

Sjötti í Ebólu
Ég er búinn að vera í vinnunni í tvo daga núna, meira af þrjósku en getu. Ég er nefnilega enn veikur. Rétt hangi með lífsmarki, horþokan liggur yfir heilanum svo að ég er seinn að fatta og sljór. Að vakna á morgnana er eins og að fæðast, ég þarf að vinna mig í gegnum slímhjúpinn til þess að finna mig. Það sem ég finn síðan á endanum er ekki fallegt.
Stundum tek ég eftir því að ég er búinn að vera að stara á tölvuna mína í fimm mínútur, og hugsa inn í mig. Alveg andlega innvortis.
Á morgun koma konurnar mínar heim frá landi Furuelgjanna, báðar sárlasnar. Þetta er meira hælið hérna. Gott að það er apótek við hliðina á mér.
Ég er búinn að vera að þrífa burt öll einkenni minnar eigin nálegu, skúra skrúbba og bóna, og vonast nú til þess að ná nógu góðri heilsu á morgun, til að geta verið verið hressi kaddlinn í fjölskyldunni eins og maðurinn á mynd dagsins, því þannig vil ég vera, alltaf:

Tíhí
Ég er ekki yfir svona húmor hafinn…
Stóra Parasupp málið
Konan mín ætlaði að birgja okkur upp af barnastikkpillum um daginn, en fékk ekki að kaupa meira en eitt bréf í apótekinu út af einhverjum lyfjareglum. Ég hváði yfir því. Síðan er ég búinn að hugsa mikið um þetta, af því að þannig er ég nú bara gerður.
Svo fór ég að reikna. Ef tilgangur laganna er að koma í veg fyrir misnotkun sem leiðir til sjálfsvíga, þá langar mig að benda á eftirfarandi:
Parasupp stílarnir sem við vorum að kaupa eru 125 milligrömm. Það þýðir að það eru átta stílar í gramminu. Hættulegur skammmtur af parasetamóli fyrir fullorðna manneskju er FRÁ 25 grömmum. Það þýðir að sú óheppna manneskja sem ætlaði sér að fremja sjálfsvíg með pillunum góðu mundi þurfa að troða 200 stílum á stærð við litla byssukúlu í stjörnuna á sér.
Tvisvar sinnum það ef maður vill vera viss.
Það væri kvalarfullur dauðdagi.
Erum við ekki aðeins of ýkt á þessum reglugerðum okkar?
Þriðji í Ebólu
Nú fer þessu helvíti að ljúka, ég trúi þessu ekki.
Ég er grasekkill í tíu daga. Ætlaði bara að koma fyrir röri út í Melabúð, stokka upp bjórskápinn, halda Science fiction þemadaga á heimilinu, draga fram öll hljóðfærin mín, spila hátt, setja upp magnara inni í stofu og almennt gera allt sem giftir menn með börn fá ekki að gera dags daglega.
En nei.
Örlögin vildu frekar að ég þeytti horfiðrildi í klút og væri í sótthitakóma, alveg einn, án þess að hafa konurnar mínar hjá mér að vorkenna mér og sjá um mig. Usss. Ég lít út eins og ég hafi farið í gegnum meltingarveginn á stóru dýri, gljáandi hvítur með bauga og rauðar nasir, illa hirt skegg og joggingbuxur, en þessi blanda er ein áreiðanlegasta getnaðarvörn í heimi.
En, á morgun er kominn nýr dagur…
Eina fólkið sem hefur hringt í mig eru fjarskyldir vinir að minna mig á að kjósa í prófkjöri Samfylkingarinnar. Hmmmm. Ég skal segja ykkur það.
Hér er allaveg mynd af dóttur minni sem ég sakna, sérstaklega af því að vikuna áður en hún fór varð pabbi allt í einu mikilvægasta mannveran í öllum heiminum, og þá finnst manni maður vera einhver.
