Undirbúningur

Undirbúningur þorrablóts Wörtunnar BC er í algleymingi, eins og sjá má á meðfylgjandi prógrammi:

Ég gleymdi að taka það fram að myndavélar og farsímar verða ekki vel séð apparöt nema í fáum tilfellum.

Svo ákvað ég að taka fyrir allar hópnauðganir í Gufubaðstofunni, þó það sé freistandi. Skv venju verða flestir ykkar óttalega lélegir næstu daga á eftir og þá er um að gera að vera bara “stóru strákarnir” og harka af sér.

Segjum sem svo að nokkrir ykkar nái smá nætursvefni í nótt, þá skulu þið byrja daginn á að fá ykkur:
nr.1 mjólkurglas, lýsi og vítamín
nr.2 sterkt kaffi og smók (nú er rétta tækifærið til að byrja að reykja)
nr.3 takið heildarþvott á trompetið og tæmið flækjurnar
nr.4 þeir sem fá stjórnlausar blóðnasir, ættu að byrja strax að fá sér áfengi
nr.5 horfið á barnaefni með börnunum
nr.6 gerið símagöbb eða hringið í Rás 2 og kvartið yfir hagnaði bankanna
nr.7 fáið ykkur aftur lýsi
nr.8 skrifið niður lista yfir uppáhalds íþróttafréttamennina ykkar
nr.9 pakkið niður í bjútíboxin ykkar
nr.10 horfið á upptöku af þættinum Party 101

Þeir sem sofa ekki neitt, skula byrja þessar morgunæfingar kl.0900

Í neyð bendi ég mönnum á að nýta sér frítt Eintal og hringja í ForSkotsembættið, verð með símatíma á milli kl.0900 – 1045, eftir það eruð þið einir þarna úti. Það fylgdi sem sagt frítt Eintal með greiðslu Þorraskattsins. (The Governor er búinn að taka sitt Eintal)

Það er líf eftir dauðann.

Skylduhlustun febrúarmánaðar…

…er platan Slowhand með Eric Clapton. Þessi plata, frá 1977 er æðislega tekin og pródúseruð, og grúvar alveg út í eitt. Meistaraverk.

Þá vitið þið hvað þið þurfið að gera.

Þorrablót Wörtunnar BC er á laugardaginn, og því ólíklegt að ég bloggi fyrr en á næsta fimmtudag sökum þynnku. Ef þið hittið mig bara í handklæði niðri í bæ þar sem ég móðga ykkur og hlæ að vandamálum ykkar með sviðakjamma í annarri og fimmhundruðkall í hinni, bið ég ykkur að fyrirgefa mér bara strax. Það er örugglega brennivínið sem talar.

Mugison Waits

Ef ég heyri enn einn yfirhamingjusaman frávitann í útvarpinu tala um Little Trip to Heaven sem nýja lagið hans Mugison, þá murka ég samviskulaust líftóruna úr litlum sætum angórukettlingi með skeið.

Muggurinn er allra góðra gjalda verður, en Tom Waits samdi lagið, og er það af plötunni Closing Time sem er meistaraverk. Meistaraverk, segi ég og skrifa. Dreifið boðskapnum. Og kaupið ykkur Closing Time. Á geisladiski. Fyrir peninga.

Takk.

Fréttatímabann

Ég ætla að taka mér frí frá fréttatímum í 2 vikur. Fylgjast bara með fréttum á netinu. Var að horfa á enn einn rifrildisumræðuþvargansþáttinn í Kastljósi í gær þar sem Stefán Ólafsson og Pétur Blöndal rifust um skatta.

Þar sem ég sat með nýsteiktan fisk og horfði á þessa snillinga japla, jamla og fuðra hvor upp í annan gat ég ekki meira og slökkti á sjónvarpinu áður en til alvarlegra meltingartruflana kæmi (Sorrý Þóra).

Það er leiðindasiður, í stað þess að fjalla um mál frá tveimur hliðum með tilheyrandi viðtölum, að etja saman rifrildisseggjum til að æpa hvor ofan í annan yfir kvöldverði landsmanna.

Var nýbúinn að lesa svipaðar pælingar um hvað fréttir eru oft óinteressant á Íslandi hjá Einari Erni á eoe.is.

Meira að segja í bandaríkjunum eru menn að teygja lopann til að halda úti fréttastöð allan daginn. Hér heima er þetta bara sorglegt. NFS tottar steypubíla.

Ég veit þar að auki hvað á eftir að gerast í fréttum næstu tvær vikur. Ófriður fyrir botni Miðjarðarhafs, Ariel Sharon á eftir að opna hægra augað tvisvar áður og ísraelskir læknar eiga eftir að túlka það sem svo að réttast sé að hernema Gaza svæðið aftur.

Loðnan á eftir að halda áfram í feluleik, og leikskólakennarar eftir að segja upp í stórum stíl.

Íranir munu halda áfram að segja bandaríkjunum að éta það sem úti frýs. Ég er hress með það. Áfram Íran.

Lamb í hrakningum mun lifa af 3 daga án vatns, og í Kóreu hafa menn kennt páfagauki að senda sms.

Góða helgi, og blessi ykkur æðri máttarvöld að eigin vali.

Hamingjuóskir…

…fær flísabúðin Vídd fyrir æðislegar auglýsingar með íslensku útgáfunni af Inspector Clouseau og spaugilegum leiklestri Stefáns Karls. Nýr standard settur í gólfefnaauglýsingum. Gröf Peter Sellers þeytir nú mold í allar áttir.

Samsæriskenning um janúar

Ég vil nú ekki vera með leiðindi, en er ekki eitthvað til í því að janúar sé “mánudagur” ársins?

Ég er alltaf skítblankur í janúar. Ég er alltaf of feitur í janúar. Það er of myrkt og kalt í janúar. Allt bilar í janúar – þvottavélar, bílar og þvíumlíkt. Jólin eru búin. Það er langt í sumarið.

Er ekki eitthvað til í þessu? Er janúar ekki rassinn á árinu? Hvað segið þið?

P.S. Tónabúðarstrumpar, ég sakna ykkar. Sá trommurónann standa einmana fyrir utan tóma gömlu Tónabúðina, hann skildi ekkert hvað varð um ykkur.

P.S.S. Það er þriðji í jeppaveðri og í staðinn fyrir að geta sagt við konuna mína “það er nú eins gott að ég keypti jeppa sem eyðir eins og einkaþota, því nú erum við allavega ekki föst í skafli”, hefla ég götur borgarinnar á bílaleigubíl af gerðinni VW Golf, upplifun sem bera má saman við að stunda kynlíf í útifötunum. Nettur janúar í því.

Hér er plötuumslag sem var hannað í janúar:

LOST

Handritshöfundar LOST hljóta að vera týndir á eyðieyju og konan í kaffiteríunni er að reyna að fylla í skarðið á meðan. 10 þættir af seríu 2 búnir og við erum í algeru rugli enn. 2 vondir þættir í viðbót og ég slekk alveg á þessu.

Einu góðu sjónvarpsþættirnir sem valda aldrei vonbrigðum eru Top Gear.

Er ég í lagi…?

Þegar maður talar við sjálfan sig á MSNinu er maður sennilega ekki langt frá því að vera andlega veðurtepptur. Deili með ykkur hvað gerist þegar skáldagyðjan fær sér bjór…

Poetry

Handlaginn…

Ég er álíka handlaginn og tileygð, einhent grameðla með Parkinson á háu stigi.

Fór með Colin (bílinn minn) á bílaþvottastöð í gær eins og sönnum burgeisa sæmir.

Síðan frystir eins og ísöld sé í tísku aftur. Við það fraus allt inni í hurðunum á honum, þannig að það var ekki hægt að loka annarri framhurðinni. Það er lamað.

Ég náði í handfylli af testesteróni og skrúfjárn og ákvað að “redda þessu”.

Afraksturinn var að nú er enn ekki hægt að loka hurðinni, en þar að auki verður aldrei hægt að opna hana að innan aftur. Allavega ekki fyrr en ég er búinn að fara með bílinn á verkstæði.

Hvenær ætla ég að læra að einbeita mér að því sem ég kann?

Blóðþrýstingur

Í haust mældist ég með svolítið háan blóðþrýsting, og fór að hafa pínu áhyggjur af því. Breytti aðeins mataræði, og fór meðal annars og keypti mér lífrænt blóðþrýstingsskólp í litlum brúsum frá Mjólkursamsölunni. Alveg helling af því.

Fór svo að taka saman niðurstöður og árangur í kvöld. Blóðþrýstingurinn er búinn að stórlagast. Svo að ég henti bara þessum þremur pökkum sem ég hafði keypt í ruslið. Enda skólpið löngu útrunnið. Veit ekki enn hvernig þetta er á bragðið.

Ég og mínar dellur.

627_4_3d

Tvennt…

Lokum DV. Í alvöru. Þetta er ekkert fyndið lengur.

Og fólk sem kaupir sér íbúð við götuna Kólguvað þarf að hætta að drekka og djamma, því það er ekki séns að það sé hægt að segja það fullur við leigubílstjóra og komast klakklaust heim.

Næsta Síða →