Sjittt

Ekki til að níðast á minni máttar, en föt borgarstýrupokans eru valin á hana af mikilli kostgæfni af blindum og daufdumbum antistílista. Hún lítur út eins og … Vá…

Tíhí

#56122 +(48)- [X]
any one have the new \”best of nirvana\” album?
<`2L> best of nirvana?
<`2L> whats that?
<`2L> 74 minutes of silence from just after when Kurt died?

Lýsing dagsins

…er “Bústin yfirstéttarportkona”. Get því miður ekki upplýst um hverja ræðir.

Já. Engin spurning.

Mér er sama

Fór að velta því fyrir mér hvað mér væri mest sama um í heimi. Mátaði nokkra hluti. Baugsmálið. Mér er skítsama um það. Mér er samt meira sama um stjórnarmyndunarviðræður Schröders og Merkel í Nískalandi. Enn samara er mér um fótboltaspark, en mest sama (samast) er mér þó um Luxemburg, E.R. þættina og jakuxa.

Annars er flutningadagur á laugardaginn, og ég er að senda út boðskortin til óheppinna vina.

Hér er mynd af dóttur minni, sem er eins falleg og 40 feta gámur fullur af influttum fallegum hlutum. Líkist semsagt móður sinni meira með hverjum deginum. Ykkur sem mislíka ofsastoltir foreldrar og þráhyggja þeirra með að þröngva fjölskyldumyndum inn á saklaust fólk bendi ég á að vera annarsstaðar en hér. Fara til dæmis í fótbolta.

Baugsmálið

Ég er sár yfir því hvað Baugsmálinu gengur illa að fá fjölmiðlaathygli.

Klukk

Ég hef verið klukkaður. Ég veit ekkert hvað það þýðir annað en ég á að skrifa fimm skemmtilegar og lítt þekktar staðreyndir um sjálfan mig. Hér koma þær.

1. Ólíkt því sem margir halda, hef ég enga hugmynd um hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór. Ekkert af því sem mér fannst mikilvægt fyrir fimm árum skiptir mig miklu máli í dag. Alveg er ég viss um að það sama verður uppi á teningunum eftir 5 ár.

2. Ég var einn al-lélegasti piparsveinn Íslands. Ég hef aldrei kunnað að reyna við konur, og konur reyna aldrei við mig nema ég sé lofaður, og þá sjaldnast ófullar. Langflestar konur sem ég var eitthvað skotinn í að viti á unga aldri hafa síðan játað fyrir mér (fullar) að þær voru það líka en ég var svo kindarlegur að ég klúðraði því ítrekað. Það má því telja til kraftaverka og árangursríks norræns þróunarsamstarfs að ég sé hamingjusamlega giftur í dag.

3. Ég er algerlega áttavilltur. Alltaf. Suður, vestur og önnur tískuorð þýða ekkert fyrir mér. Get týnst í Viðey og orðið úti. Þessu verður ekki breytt né bjargað. Ekki segja mér að koma norðanmegin eitthvað bull…

4. Ég geng í ullarsokkum nánast allt árið, og finnst engin tilfinning óþægilegri en að vera kalt á tánum.

5. Ég held þetta blogg úti af því að ég er að koma því í vana að skrifa, svo ég geti klárað bók út frá meiriháttar góðri hugmynd.

Ég ætla ekki að klukka neinn.

Hér er mynd af Atla, vini mínum og kyntrölli

HojHoj

Sit heima með nýjustu útgáfu af LeikskólaEbólaveirunum sem dóttir mín nær í fyrir okkur reglulega núna. Mér líður pínulítið eins og tilraunadýri fyrir veirustofna. Vona að það sé ekki neinn með holdsveiki á leikskólanum.

Annars er ég mökkhress strákur, og glaður með lífið, eins og kettlingur á kókaíni. Stutt í flutninga, og ég er byrjaður að pakka niður því sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina. Eins og allir vita sem hafa einhverntímann flutt, er það oft skemmtileg leið til þess að rifja upp gamla tíma, finna hluti sem maður var búinn að gleyma að maður ætti, og henda fötum sem eru orðin hallærisleg, og voru það kannski alltaf.

Annars er ég að fá tökuefnið mitt úr ferðinni löngu, og hlakka mikið til að sjá það og vinna með. Það get ég alveg gert heima þótt ég sé með smá flensu. Tæknin er orðin svo ótrúleg.

Mynd dagsins er af mér með alhálfvitalegasta glott ársins, að reyna að láta líta út fyrir að mér finnist gaman að vinna í 42 metra hæð.

Ferðalagið mikla

Reykjavík – Glasgow – Dublin – Amsterdam – Rotterdam – Amsterdam – Gatwick – Amsterdam – Dubai – Manchester – London – Reykjavík frá síðasta sunnudegi til gærdagsins. Níu flug á átta dögum. Flugvellir, raðir, vegabréf, yfirvikt. Endurunnið prump úr öðrum farþegum spýtist út um loftræsistútana í andlitið á dauðþreyttum ferðalöngum sem horfa vonlausir á dularfullar flugmáltíðir. Erfið en skemmtileg vinna þess á milli, í alveg stórskemmtilegum hópi. Vonandi skilar þessi ferð góðu efni.

Ég veit allavega að bara dvölin í Dubai í 2 daga er með því eftirminnilegra sem ég hef upplifað. Ég er aftur á móti jetlaggaður eins og fullur poki af mjög jetlögguðum hlutum. Ég trúi á kenninguna að þegar maður ferðist milli tímabelta, fylgi sálin ekki jafnhratt með manni, og maður þurfi að bíða þangað til hún kemur sér fyrir aftur. Þannig líður mér allavega núna.

Hér fylgir útsýnið úr hótelherberginu mínu…

Kveðjur frá Dubai…

Í augnablikinu er ég í Dubai. Í dag skaut ég skot í 50° hita í eyðimörkinni. 50 gráðurnar voru í skugga, en ég í sólinni. Frekar villt. Hér er bara allt úr gulli. Klikkuð borg. Vinsamlega leggið inn skilaboð.

P

Heilræði dagsins…

Aldrei, aldrei skipta við fyrirtæki sem auglýsa að þau “sérhæfi sig í alhliða heildarlausnum”. Þau eru sennilega ekki góð í neinu.

Hr. Föðurbróðir

Þið megið kalla mig Hr. Föðurbróður ef þið viljið.

Emma Ósk Gunnarsdóttir er nefnilega fædd, og vel það. Hún er líka sæt, eins og meðfylgjandi mynd sannar á óyggjandi hátt. Hún kom með fulla hárkollu, og er fær í flestan sjó. Foreldrum heilsast vel, og eru eins og gefur að skilja að springa úr monti.

Ég er búinn að ákveða að vera frændinn sem gefur henni háværar jóla og afmælisgjafir, kannski hljóðfæri eða tvö, og kennir henni að meta frjálshyggjuhugsun, rokkabillýtónlist og rauðvín.

Emma