Ég er að bííííða eftir þér…

…litla frænka, farðu að koma í heiminn svo ég geti kallað mig föðurbróður :-)

Leiðindahelgi

Ég og dóttir mín ákváðum að vera ekki við hestaheilsu um helgina, svo að við fengum okkur smá hálsbólguskít og hor. Ekkert alvarlegt, en nóg til þess að skemma fyrir okkur helgina og gera okkur pirruð og leiðinleg.

Fór reyndar í teiti hjá vinum á föstudagskvöldið sem var prýðilegt. Teitið var haldið í Viðey, og aftur stóð ég mig að því að blóta því að það sé ekki byggt í Viðey. Þarna stóð ég á verðmætasta byggingarlandi Íslands á eftir Vatnsmýrinni, og langaði að búa þar. Þessu breyti ég þegar ég verð keisari. Kannski set ég keisarahöllina bara í Viðey. Eða Lundey, sem verður við hæfi, því lundinn verður í nýja skjaldarmerkinu.

Annars er bara mánudagur.

Mynd dagsins er af mér að þykjast stýra bát sem heitir Goðafoss.

10

Neihættunúalveg…

Ég æsi mig sjaldan yfir bíómyndum.
Ég hef ekki alltaf gaman af súperhetjumyndum.

En Fantastic4 er lélegasta súperhetjumyndin síðan Batman og Robin.

Hún er öll leikin eins og léleg klámmynd, og plottið er eins þunnt og hárið á Axl Rose. Ég er bara foxillur yfir tímanum sem ég eyddi í að horfa á hana, tíma sem ég fæ aldrei aftur. You have been warned.

Híhí

Ég var ekki fyrr búinn að senda elektrónurnar með síðustu skilaboð til internetsins en það var hringt og mjér tjáð að ég hefði fengið íbúð sem við skoðuðum í gær og leist vel á, ólíkt kakkalakkabælinu. Þannig að þið getið bara sjálf verið heimilislausir aumingjar. Jibbý. Kátt í höllinni.

Heimilislaus aumingi bloggar

Ákváðum að bíða aðeins með að kaupa okkur íbúð, og leigja áfram í eitt eða tvö ár, þangað til við vitum hvað við viljum vera þegar við verðum stór, og hvar við viljum búa í heiminum. Erum því búin að vera að skoða leiguíbúðir, og sumt af því sem fyrir augu ber er ekki alveg að gera sig.

Skoðaði íbúð í gær sem var lengst úti í rassgati, skítug, máluð með fótunum og með hálf-upprúlluðu filt-teppi á gólfunum. Ég fór úr skónum til að óhreinka þá ekki. Eigandinn sagði upp í opið ógeðið á mér að hún vildi fá 100 þúsund krónur á mánuði í leigu, eins og ekkert væri sjálfsagðara.

Ég íhugaði eitt augnablik að hefja kakkalakkabúskap og rottueldi á þessum stað, en hætti við. Erfitt á fá ríkisstyrki til þess.

Kæri lesandi, ef þú veist um íbúð til leigu fyrir afdankaðan kvikmyndagerðarmann, Svía, eins vetrar hálfsvía, hund og kött í nágrenni Íslands, þá er ég að leita. Filtteppi vinsamlega afþökkuð.

Gogirl

Bónus Schmónus

Það sem mér finnst alvarlegast af öllu því sem tengist Baugi hefur verið skringilega lítið í allri umræðunni upp á síðkastið, en það er fólkið sem kaupir í matinn í Bónus í Hraunbænum á laugardögum.

Ég er yfirlýstur Nettó maður, enda er ég rödd Nettó samsteypunnar og fræði sauðsvartan almúgan reglulega um reyfarakaup þar á bæ.

Í dag bar svo við að ég neyddist til að fara í Bónus í Hraunbæ til þess að verða mér út um nauðsynjavörur.

Bónus verslanirnar eru ekki fyrir fólk með skap sem á það til að gjósa. Þær eru fínar fyrir fólk sem skiptir ekki skapi þótt maður stingi börnin þeirra með gaffli á meðan maður tæmir veskið þeirra. Ég er ekki svoleiðis.

Gangar verslunanna eru nefnilega hannaðir fyrir breidd einnar og hálfrar innkaupakörfu, svo að illgerlegt sé að mætast með lítilli fyrirhöfn. Þannig er tryggt að aðgengi að vörum og almennt ráp um verslunina sé ómögulegt án þess að rekast utan í karlægar kerlingar, utangátta eiginmenn, og/eða vörur á sértilboði. Allt þetta fólk virðist í losti, og eitthvað er um að fólkið í versluninni hafi ekkert annað á stundarskrá dagsins en að fara í Bónus í Hraunbænum. Þeim liggur ekkert á.

Í dag var dagur stórbeinóttra í Bónus, og mættu því allir sem bumbu gátu valdið, komu sér fyrir á víð og dreif um verslunina og horfðu upp í loftið.

Ein kerling plantaði sér þvert á alla umferð í kælinum, lagði innkaupavagninn sinn ákveðin fyrir aðra umferð, styrkti þennan farartálma með tveggja sementspoka þjóhnöppum, og hóf síðan að skoða öll eggin í stórum eggjabakka, eins og hún sæi mun á úr hvaða hænu-anusum þau kæmu.

Ætlaði greinilega ekki að láta selja sér hvað sem er, og fannst ekkert athugavert við að káfa á eggjum í versluninni með feitum puttum sem enginn veit hvar hafa verið.

Það tók mig 20 mínútur að plokka saman í lítinn poka, og upplifunin fylgir mér að eilífu. Ég er búinn að vera að naga upp úr valíumkrukkunni síðan ég kom heim, með Enyu á fóninum.

Aldrei aftur Bónus.

Myndin sem hér fylgir er þjófstolin af www.thorsteinngudmundsson.is

Fokkings

Nú er ég vondur. Átti að skjóta auglýsingu í Kuala Lumpur. Hlakkaði mikið til. Þá komu skógareldarnir í Indónesíu, og gerðu skyggnið í Malasíu 2 cm. Get eins sett upp reykvél í stúdíói og að fara þangað. Þetta er ekki sanngjarnt.

Tek auglýsinguna bara á Selfossi og fer í strípur og ljós í leiðinni.

Svolítið að gerast

Ég má ekkert vera að tala við ykkur, því ég er að keyra nýja bílinn minn. Í dag er sumsé dótadagur, og er það vel.

Ekkert að gerast…

Tek allt saman aftur. Það er ekki neitt að gerast. Allt of dýra íbúðin sem ég bauð í eftir að hafa snúið upp á hendur og fætur bankastjóra og viðhengja þeirra, verður ekki mín eftir allt saman, heldur varð fórnalamb yfirboða sem ég gat ekki teygt mig í.

Bíllinn sem ég átti að fá í dag verður ekki til fyrir mig fyrr en á fimmtudaginn. Hinn hataði “Anton”, versti bíll í heimi, dó fyrir utan Nings í gær, þegar ég brá mér þar inn að sækja kaloríur eftir hundagöngu. Tók leigubíl heim með blautan hund. Mjög spes svipur á leigubílsstjóranum, þótt hann hafi vitað af hundinum.

Þannig er ég fótgangandi og á enga ógeðslega dýra íbúð. Frekar mikill mánudagur í þessu. Er þó enn með báða fætur og er ekki framsóknarmaður, svo við lítum á björtu hliðarnar.

Talandi um bjartar hliðar:

Allt að gerast

Það er bókstaflega allt að gerast. Meira síðar.

Hvað með Árna?

Lesendur hafa verið iðnir við að senda bréf og skeyti hingað með spurningum um Árna Johnsen, hvað sé að honum, og hvernig eigi að bregðast við því.

Flestir Íslendingar hafa blendnar tilfinningar til mannsins. Hann er fjallmyndarlegur, duglegur, afkastamikill, skapmikill og ákveðinn, og lætur sig litlu varða hvað öðrum finnst um gjörðir hans. Hann er víst einnig liðtækur í bólinu og lúnkinn nefndarmaður.

Neikvæða hliðin er sú að hann er ofurfrekur, stálóheiðarlegur (hér herf ég góðar heimildir og nýt fulltingis dómskerfis landsins, síst vil ég róg bera) og langsamlega verst af öllu: arfaslakur gítarleikari. Það er bara staðreynd, og fullsannað að hann hafi haldið mörgum frá því að iðka þá göfugu íþrótt sem gítarleikur er.

Sú staðreynd að hann hafi bankað í Hreim sýnir bara að hann sé alvöru karlmenni og telst honum ekki til miska. Hreimur hefði bara góðfúslega átt að reka honum einn vænan á gúmorinn til baka, hann hafði bara hlegið og haldið áfram með lífið. Þetta eru bara venjuleg tjáskipti Vestmannaeyinga og Grindvíkinga, og reyndar allra sem búa í þorpum þar sem ekki er fátítt að systkini séu hjón.

Það er þó sama hvað hverjum finnst, það er kominn tími að koma málum Árna í fastan farveg, svo hann þurfi ekki alltaf að vera framan á DV. Við viljum vita hvar við höfum hann, en samt geta dáðst að honum úr fjarlægð.

Legg ég því til að hann verði stoppaður upp á næstu þjóðhátíð, og varðveittur komandi kynslóðum sem víti til varnaðar.

Einhverjir hafa komið fram með þá athugasemd að það sé sennilega ólöglegt að gera þetta að honum lifandi, hvort sem það sé gegn vilja hans eður ei. Það er í skoðun hjá lögfræðiliði þessa vefseturs.

Fullsannað þykir að þetta sé kvalafullt, en fáir virðast setja það fyrir sig. Mögulega þó Árni sjálfur. Óneitanlega væri þetta góð skemmtun.

Aðrir Íslendingar sem stoppa mætti upp að margmenni viðstöddu: Leoncie (með fyrirvara um þjóðerni), Geir Ólafsson og Eirík stórblaðamann. Hvernig líst ykkur á þessa hugmynd?