By the way…
Ef ég væri spurður svona casjúallý hvað ég hefði gert í gærkvöldi, þá hefði ég svarað: “nú sosum ekkert sérstakt, NEMA AÐ TÓNLEIKAR MEÐ BRIAN SETZER SÉU EITTHVAÐ SÉRSTAKIR!”
Eitt af algerum átrúnaðargoðum mínum í tónlistarheiminum spilaði á litlum klúbbi sem heitir Berns í gær. Salurinn er kannski eins og tvöfaldur NASA að stærð og ég var svo nálægt tappanum að hann hefði hæglega geta hrækt einni góðri slummu í augað á mér án þess að þurfa að draga inn andann fyrst.
Kallinn rokkaði svo hrottalega að ég verð sennilega aldrei samur. Brjálaður stemmari. Stray Cats lög og annað Rokkabillí var sterkast í prógramminu, enda það sem maðurinn er frægur fyrir, en hann lék sér líka í átt að köntrýi. Skemmtileg tilviljun að hann á alveg eins Gretsch gítar og ég. Hermikráka.
Sumarfríið mitt er að gera góða hluti. Búinn að láta konuna velja á mig föt fyrir allt næsta ár. Á morgun: Lagt af stað á eyju í Skerjagarðinum að hitta vini, grilla og marinera sig í öli.

Ólympíufari?
Ég hef ákveðið upp á mitt einsdæmi að keppa í Ólympíuleikunum í sólbaði utanhúss, sem haldnir verða í Oman á næsta ári. Veðrið er búið að vera að sleikja 30 gráðurnar í skugga í mínum hluta Svíþjóðar, og ég er orðinn brúnn svo nemur að minnsta kosti 2 ljósopum.
Í kjölfarið á því ákvað ég að keppa fyrir Íslands hönd, og reyna að taka gullið heim.
Nú er ræs klukkan 4 á morgnana, þá borða ég tylft af gulrótum, og fer svo út rétt áður en sólin kemur upp, og leggst á álpappírsdýnuna mína, sem safnar afvegaleiddum sólargeislum og beinir þeim að mér.
Konan mín ber samviskusamlega í mig vatn og fleiri gulrætur, snýr mér í rétta átt og öskrar slagorð á mig þegar mig langar að gefast upp og fara inn í skuggann.
Þetta lítur vel út, nema ég á það til að missa minnið upp úr hádegi, en fæ það iðulega aftur.
Vona svo að enginn hafi verið hissa yfir sprengingunum í London, og enn á ný hvet ég fólk til að þakka leiðtogum Evrópuríkjanna fyrir að draga afleiðingar ósanngjarns Íraksstríðs til Evrópu, sem hefur ekkert með það að gera. Takk hr. Blair.
Blessi ykkur,
Pelle
Update
Veðrið í Sverige er búið að sökka í allt sumar. Þar til ég kom. 24-27 gráður alla daga, alls 12 ský hafa sést hér, og þau meinlaus. Það er verið að dekra við mig hérna. Lífið er ekki slæmt. Ætli maður geti verið í fríi allt árið?