Sumarið

Sumarið er komið. Vorboðinn ljúfi er ekki Lóan, heldur höggborinn. Um leið og daga tekur að lengja eru höggborar Íslands dregnir úr myrkum kompum og notaðir til þess að rífa miðbæinn í sundur, en miðbæjaruppgröftur er jaðaríþrótt sem borgarverkfræðingur stundar leynt og ljóst.

Sami verkfræðingur sér líka til þess að jafnhliða götum sé lokað, alltaf þremur saman, þannig að aðeins þvergötur þeirra virki. Reynið að koma í kaffi til mín á bílnum ykkar.

Annars er ég hresst sólskinsbarn. Hér með er mynd af dóttur minni, sem hefur verið ráðin til Filmus, og skartar nú starfsheitinu “Drool Manager”

Drool

Talstöðin

Það virðist vera sannað að Ísland er of lítið og viðburðasnautt land til að geta rekið talmálsstöð í útvarpi allan daginn án þess að það verði efnisskortur. Hvern morguninn á fætur öðrum kveiki ég á Talstöðinni til þess eins að detta inn í óhugnalega leiðinlega mónólóga óþekktra kverúlanta, þar sem þeir lesa kafla sem voru of leiðinlegir til þess að komast inn í þurrar doktorsritgerðir þeirra.

Viðfangsefnin virðast mér pistlar um allt frá hvatavísum bifhára og snarstefjun í lýrísku formi til langra pistla um Gunnar frá Steini, sem er ekki þekktur fyrir neitt.

Sorglegt, því ég vil talmál. Skemmtilega fólkið nennir bara ekki að hanga alltaf þarna, og er því búið að opna dyrnar fyrir alla þá sem eiga skrifaðan texta sem þeir geta kallað eigin. Voðinn þar með vís.

Purple Onion

Staðurinn er Hafnarstræti 18. Maturinn er Shawarma platti. Mmmmhh. Gómsætt. Mæli með.

You go girl…

Ég sit hérna sveittur við að undirbúa stærsta Júrópartý aldarinnar. Leigði Listasafn Reykjavíkur, Bobbysocks verða í anddyrinu að bjóða upp á drykki og allt fræga fólkið verður þarna, meira að segja ICY tríóið. Eyfi tekur Nínu, og Stjórnin selur jakkana sem þau kepptu í og lætur ágóðann renna til líknarmála… síðan er veðbankinn í fullum gangi og það eru glæsileg verðlaun í boði fyrir þann sem giskar á í hvaða sæti Selma lendir. Og svo ha…hvað meinarðu…? …ekki að keppa?…en hérna…djö….

Selma_1

Was ist Los?

Fyrst, góðu fréttirnar.

Esther og Tommi eignuðust í fyrradag gullfallega dóttur í farsælu goti. Enn hafa ekki borist myndir af dótturinni, og fylgja því engar hér með *hint*.
Ritstjórn óskar að sjálfsögðu til hamingju og ítrekar fyrirskipun um að stúlkan verði skírð Petra í höfuðið á mér.

*********

Ég er einn af áhugamönnum um dauðarefsingar og limlestingar fyrir sendendur og upphafsmenn ruslpósts. Aldrei hefur þessi tilfinning verið sterkari en núna, þegar inn í inboxið mitt flæðir ruslpóstur á máli ástarinnar, Þýsku. Hvað er það? Þýskur ruslpóstur…

Tillögur að refsingu fyrir ómenni sem dreifa þýsku spami óskast. Sjálfur sting ég upp á eftirfarandi:

Sakhæfir verði látnir búa í Þýskalandi í 2 ár án skilorðs (ekki Berlín, heldur Dresden eða Stuttgart). Á meðan dvölinni stendur verði þeir látnir éta útprentun af öllum ruslpósti sem þeir hafa sent, prentuðu út á endurunninn og ódýran þýskan stofnunarpappír með súrkálsbragði. Að loknum þessum tveimur aðlögunarárum væri rétt að draga hægt úr þeim innyflin með kínverskum matprjónum, í gegnum öll líkamsop þeirra, og væta allt saman upp úr tjöru og kveikja í. Stríða þeim síðan og uppnefna þar til það slökknar á þeim.

Annars þyki ég nú bærilega umburðarlyndur strákur, og seinreyttur til reiði…

Það eina, og ég endurtek EINA góða sem hefur komið frá þýskalandi fyrir utan BMW er þessi gaur hér.

Ömurleiki

Hvað er betra við langa góðviðrisfríhelgi að gera en að leggjast með allri fjölskyldunni í flensu og þeyta hálsbólguhor í klút? Erfitt að segja. Ég er allavega búinn að þeyta svo mörg horfiðrildi að ég gæti haldið sýningu. Kannski er eitthvað merkilegt við það að þetta hafi gerst við setningu Listahátíðar?

Horfði aðeins á setningu Listahátíðar, og hlýnaði aðeins um hjartarætur. Ég hata listasnobb og fyrirlít allskonar eftirskilgreiningar á list, en ég fagnaði því innra með mér að þeir sem sátu fyrir framan sjónvarpið hefðu fengið að sjá mongólsku barkasöngshljómsveitina (sem var æðisleg), nokkuð sem þeir hefðu aldrei séð né vitað af ef ekki væri enn til fólk og peningar til þess að opna augu okkar fyrir öðru en hámarkaðssettri afþreyingu. Ég er að fílaða.

Gunnsi og Eva eru flutt í íbúðina sína í Grafarholti. Fórum í heimsókn í gær, og fundum húsið eftir einungis 2 símtöl. Ég set spurningarmerki við að búa í hverfum sem byrja á Grafar- en íbúðin þeirra var fín, og litla frænka mín á eftir að vera eins og blóm í eggi þarna, ef það er eitthvað eftirsóknarvert að vera blóm í eggi.

Nú er það hundspottið í langan og verðskuldaðan göngutúr, og strax á eftir gítarsarg og væl í boði hússins.

Ást og umhyggja,

Pelli

Star Wars

Þetta finnst mér ÓGEÐSLEGA fyndið (17676.8K)

Blaðið

Vonum svo að “Blaðið” beri gæfu til að verða merkilegra en sjónvarpsauglýsingarnar þeirra, sem sökka slím úr rassi krabbameinssjúkrar rottu. No offence.

Tónlistin

The Sky Is A Landfill – Jeff Buckley
Come back to bed – John Mayer
Dansa pa min grav – Bo Kaspers Orkester
99 problems – Jay-Z
Any major dude will tell you – Steely Dan
Homesick – Kings of convenience
Georgia on my mind – Ray Charles
Amelia – Joni Mitchell (Travelogue)
I can buy you – Nina Persson

Tómasdóttir 2

Tommi tökubarn var að afreka að koma annarri snót í heiminn. (Konan hans, Anna Lísa, hjálpaði reyndar aðeins til líka). Til hamingju kæra fjölskylda!

Tomass

Sumarskap

Ég get ekki annað en komist í sumarskap þegar ég sé þessa mynd af dóttur minni.

Asp3

Það er staðfest…

Ég var áður búinn að viðra skoðanir mínar á stöðumælavörðum á þessari síðu, en í dag átti ég frekari samskipti við einn slíkan.

Þegar ég fór að ná í gleraugun mín, tók ég sénsinn á að sleppa við sekt, en þegar ég kom að fjölskyldutraktornum stóð þar ólögulegur og renglulegur stöðumælavörður, nýbúinn að skrifa sprillansnýja sekt á bílinn.

Ég veit miklu betur en að reyna að tala stöðumælaverði til á sjarmanum. Þeim er skítsama um mig. Ég ákvað samt að reyna að taka þessu með reisn, og reyna allavega að vera kumpánalegur, og sagði eitthvað á það leið að ég hefði nú ekki komist upp með þetta. Mannfýlan starði á mig eins og ég hefði beðið hann um að kokgleypa lifandi fóstur. Fyrirlitningin skein úr ófríðu andlitinu. Ég var allur minni maður á eftir. Er vanur því að fólk taki því vel þegar ég reyni að vera hress. Bölvi þessari stétt. Norður og niður með þessi Ingjaldsfífl borgarinnar.

Annars er ég mjög jákvæður og dagfarsprúður strákur…

Næsta Síða →