Tiger…

Tiger kominn á vélina. Makkanördar geta glaðst. Þetta er schnilldin ein.

Árás…

Ég er, eins og allir vita, lítið gefinn fyrir að ýkja, en hér í höfuðstöðvum Filmus á Íslandi flýgur nú um býfluga sem er á stærð við mjög lítinn kettling. Aftan úr henni stendur broddur sem er á stærð við heklunál. Þetta er eiginlega meira svona BýFugl. Hundarnir hnipra sig saman af ótta, og ég gerði mér hjálm úr Powerbook, sem ég batt á höfuðið með Firewiresnúru.

Flugan kláraði úr kaffibollanum mínum áðan, svo ég verð að reyna að komast niður að kaffivélinni án þess að vera stunginn á hol.

Annars er það að frétta að þegar ég horfði á 19. þáttinn af LOST í gær, fékk ég hugljómun. Þá var kominn fjórði í óútskýranlegum hausverk. Fór í dag og lét mæla í mér sjónina, og viti menn… ég þarf að nota gleraugu til að hvíla á mér glyrnurnar. Magnað.

Góða helgi Ingvar minn, og Jón Kjartan líka.

Meira grín…

Þetta er alltaf svolítið klassískt.

Bwahahahahahahah

Uppáhalds lagið mitt í frábærri útsetningu

Súkkó

Hér á þessu bloggi er að verða einmanalegt. Þessi vin í eyðimörkinni, þessi griðastaður í stafrænni síbyljunni dregur að sér færri gesti en kvikmyndir Hrafns Gunnlaugssonar. Minnir á svaladrykkinn Súkkó, sem Sól framleiddi á sínum tíma. Gos með súkkulaðibragði.MMMmmmm.

Ég fæ bara komment frá Ingvari í Tónabúðinni, og mig grunar að konan mín sé að borga honum fyrir það. Með peningum. Reyndar hefur konan mín rakað bringuhárin af Ingvari í Tónabúðinni. En það er önnur saga.

Ég er sennilega ekki að ljúga nógu miklu til að gera þetta blogg áhugavert.

Ég ætla að gera tilraun til að glæða þetta lífi með smá lygum á næstunni. Sjáum hvort það virkar. Annars er alltaf hægt að loka sjoppunni, ganga í Samfylkinguna, eins og flest sambýli á Íslandi hafa gert, og fara bara að eyða fullkomlega rukkanlegum vinnutíma í eitthvað annað. Eins og vinnu.

Hvað finnst ykkur um…

…íslenskar bíómyndir?

Fender Strat

Í gær bættist nýr meðlimur í fjölskylduna, en það er Fender Stratocaster frá 1986, rauður að lit. Honum og mér heilsast vel.

Pólitík Schmólitík

Ég ólst upp á miklu krataheimili, sem í dag er sjálfkrafa orðið að Samfylkingarbæli. Samt indælis fólk. Sjálfur er ég í besta falli hægri krati, sem á í dag ekki samleið með neinum stjórnmálflokki í augnablikinu;

Sjálfstæðisflokkurinn er að kyrkja sjálfan sig í eigin þverslaufum, og þar ganga menn um bísperrtir og breiða yfir skelfileg mistök og hroka með staðreyndafimleikum og rykblæstri í augu innanhúss. Ég fékk nóg af bullinu og sagði mig burt. Bjartasta vonin er Gísli Marteinn. Hann á allavega lopapeysu og hlustar jafnmikið og hann talar.

Samfylkingin er allt nema það sem nafnið bendir til, Vinstri grænir eru fullir af Kolbrúnu Halldórsdóttur, en eiga þó heiðarlegasta þingmanninn í ljótustu bindunum. Frjálslyndir eru bara matarkexmaulandi kvótaröflarar og framsóknarmenn eru geimverur. Nema Guðni Ágústsson. Dagný Jónsdóttir á að stofna eigin flokk, liðleskjuna, þar sem þingkosnir fulltrúar afsala sér skoðunum sínum til sér eldri og frekari samþingmanna. Hennar tími mun aldrei koma.

Það er búið að vera gaman að hlusta á umræðuna í kringum kosningu formannsefnis í SF, hún er spennandi, og nokkuð heit á mínu heimili.

Sjálfur er ég hrifnari af Össuri í þetta sinn, þótt mér hafi þótt Ingibjörg ágætis borgarstjóri. Ég kaus hana meira að segja í borgarstjórn þrátt fyrir að vera þá flokksbundinn sjálfstæðismaður (gat ekki fengið af mér að kjósa lista sjálfstæðismanna eins og hann var síðast, og þótti ekki Björn Bjarnason vera sá besti til að leiða flokkinn inn í borgina) og fannst hún minni manneskja fyrir að fara út úr starfi sínu þvert ofan í fyrri yfirlýsingar. Mér er alveg sama hvernig það er réttlætt eða spunnið í kringum það í dag. Hún var ekki nauðbeygð til þess að gera neitt af Kiwanisklúbbnum á Seltjarnarnesi eða Boutros Boutros Ghali. Ef því er lýst yfir í DV á morgun að ég ætli að ganga í Krossinn, get ég alltaf varið mig og svarað til baka. Þarf ekki að ganga í Krossinn því það stóð í DV.

Mamma mín benti mér á að ég væri duglegur að fyrirgefa Össuri fyrir öll sín mistök en léti þetta standa í mér, eina svona smá yfirsjón eins og að ljúga upp í opið ógeðið á allri þjóðinni þegar maður er vinsæll stjórnmálamaður. Þetta er að vissu leyti rétt hjá henni, en skoða verður líka þá staðreynd að Össur hefur alltaf komið fram eins og það sem hann er, breyskur maður sem gerir mistök. Ég kann að meta það. Mér finnst Össur skemmtilegur. Ef fólk játar aldrei á sig mistök, eins og Ingibjörg, þverr samúðin með þeim mjög hratt.

[Ég spyr: hversu margir hér mundu bjarga Guðlaugi Þór frá langdvöl fjarri sjónvarpinu og íslenskum stjórnmálum? Hann eyðir allri sinni orku í að drulla yfir það sem aðrir hafa gert, og getur aldrei játað að pólitískir andstæðingar hans geri nokkurn skapaðan hlut réttan]

Ég missti allavega alla samúð til handa Ingibjargar, og finnst hún bara vera svolítið forhert og frek. Svo fer spilið með að það þurfi að kjósa konu af því að hún er kona þveröfugt í mig. Ég þráast við. Ég kýs fólk af því það er klárt, ekki af því að það er með brjóst eða typpi.

Held samt að það verði gaman að sjá Ingibjörgu réttkosna á þingi, og í ríkisstjórn. Þannig endar þetta nú allt saman. Hún fær sitt tækifæri til að sanna sig sem ráðherra. Það stendur þó eftir að þjóðin er að sýna henni að hún og samstarfsfólk hennar gerðu hrappalleg og hrokafull mistök þegar þau lugu því að sjálfum sér að þjóðin yrði fljót að gleyma einu svona smá útspili og flykkjast á bak við hana.

Annars er spá mín eftirfarandi:
Ingibjörg tekur þetta, eftir lokaslag sem útheimtir blóð, svita og tár.
Síðan stillir hún sér upp sem forsætiráðherraefni. Næsta ríkisstjórn verður einhvernsskonar vinstristjórn. Það er bara svo einfalt.

Sjálfstæðisflokkurinn tekur aftur á móti borgina og fer að laga til í henni og henda dot.com þrotabúunum, vonandi með skárri framboðslista en síðast. R-listasamstarfið springur.

Páfinn á eftir að haldast í starfi í 4 ár, og vera ábyrgur fyrir dauða milljóna manna sem hefðu betur notað smokkinn og ekki fengið alvarlega smitsjúkdóma. Að sama skapi verður hann ábyrgur fyrir lífi ógrynnis barna sem heimurinn er ekki í stakk búinn að taka vel á móti.

Árið 2010 á Vatíkanið, stærsta og blóðugasta valdamiðstöð heimsins (á eftir Kiwanisklúbbnum á Seltjarnarnesi) eftir að viðurkenna tilvist internetsins, en mæla á móti notkun þess.

Hálfvitar. Pólitík er klikk stundum. Öll orkan sem fer í þetta raus í stað þess að stjórna skútunni vel fer stundum í taugarnar á mér.

Nóg raus í bili. Mynd dagsins er af algerlega ónefndum manni sem ég þekki, sem mundar hér mynd af vinkonu sinni rétt fyrir stórósigur og afhroð hennar í þingkosningum.

Nobody

Ótrúlegt

Ég er einn af þeim sem vissi ekki fyrr en bara mjög nýlega að Salvör Gissurardóttir feminazisti og Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor væru systkini. Þetta hefur verið mér drjúgt umhugsunarefni, mikið andskoti hljóta umræður á því heimili að vera líflegar. Pæling.

Fréttir

Auðvitað er kominn þriðjudagur, og ég þarf að fara segja fréttir á þessum fámiðli hérna. Sumsagt.

Bippi og Linda halda upp á 60 ár og brúðkaupið sitt
…þannig að á föstudaginn var farið í lakkskóna og lakkrísbindið í veislu. Þar spilaði ég sem fullgildur meðlimur í hljómsveitinni FLISS, en það er skammlífasta hljómsveit sem ég hef verið í þangað til annað kemur í ljós. Ég, Dj Bjarki, Bippinn sjálfur, Páll Óskar, Toggipop og Kalli í Bellatrix æfðum lagið "I was made for loving you" með Kiss (þaðan kom að sjálfsögðu hugmyndin af þessu frábæra nafni á sveitinni), spiluðum það fyrir brúðina, rótuðum og hættum vegna listræns ágreinings.

Partýið var skemmtilegt, og það var gaman að rifja upp andlitin sem mig rámaði í úr steggjapartíinu. Frumsýndi nýjan DVD disk með 5 lögum sem steggurinn söng fyrir okkur. Það var ágætis lukka, enda maðurinn lunkinn söngvari, á sama hátt og Ástþór Magnússon er lunkinn forseti.

Næstumþví Flygill

Ég var næstum búinn að kaupa mér notaðan flygil í dag, en guggnaði á síðustu stundu. Stærra hús fyrst. Og kannski feitari bankabók.

Píslin vinnur leiksigur
Var að vinna sjónvarpsauglýsingar í síðustu viku þar sem þurfti kornabarn í tökur. Stóðst ekki freistinguna að setja Ölmu Sól í þetta hlutverk, hún átti að sofa í skotinu, og svaf í gegnum tíu tökur í flóðlýsingu með háværa krana í kringum sig. Semsagt leiksigur. Hún skríður nú um allt og burðast við að standa.

Þetta var helst í fréttum hér á bæ.

Flisss2

Magnað

Páfinn er farinn. Ég og hann unnum nálægt hvor öðrum, ég vann um tíma hjá fyrirtæki sem hafði aðsetur nærri Péturstorgi í Róm. Annað eigum við ekki sameiginlegt, nema að vera lélegir ballettdansarar.

Ég er líka farinn. Farinn til Lundúna í þrjá daga. Þið passið landið fyrir mig á meðan. Tek Tomma með mér.