2004 – Árið í hnötskurn
Besti stjórnmálamaðurinn
Kristinn H. Gunnarsson sýndi að það er hægt að standa fyrir því sem maður var kosinn inn á þing fyrir, og þótt ég sé ekki pólitískur samferðamaður Kristins kann ég að meta að hann stóð uppi í hárinu á krumpuprumpunum í ríkisstjórninni og lét ekki bara vaða yfir sig á skítugum takkaskónum. Það þarf af og til að minna alþingismenn þjóðarinnar á að þeim ber skylda umfram annnað að fylgja eigin sannfæringu og ekki einhverri hrossakaupastefnu.
Versti Stjórnmálamaðurinn
Dagný Jónsdóttir drullaði upp á bak í "stóra-skólagjaldamálinu" og mjakaði sér svo um í því. Hún á sér engan keppinaut þetta árið þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir ýmissa fastra gesta. Það má mikið gerast til þess að stjarna þessarar konu lýsi á ný, ef hún lýsti einhverntíman.
PR Skandall ársins
Shell bæta gráu ofan á svart með því að reyna allt sem þeir geta til að stöðva samkeppni Atlantsolíu í Kópavoginum, rétt eftir að umræðan um stórþjófnað og föðurlandssvik félagsins var í hámarki. Þeir skutu sig þannig í augað með eigin haglabyssu. Frábærlega vanhugsað.
Bestu bækur ársins
"The Dirt" – bók um ævi og störf einnar alleiðinlegustu poodle-rokk-hljómsveitar í heimi, Mötley Crue. Kom mér verulega á óvart, og ég klökknaði meira að segja á einum stað, eitthvað sem ég hefði aldrei trúað. Meira um hana .:hér:.
Altered Carbon kom líka á óvart.
Versta bókin
Samkvæmisleikir eftir Braga Ólafsson ollu mér svo skelfilegum vonbrigðum að ég táraðist næstum. Það er bannað að klára ekki bækur með einhverju pay-offi. Það er bannað að klára ekki að skrifa bækur. Punktur. Hlýtur líka verðlaun fyrir ólíkindalegustu setningar sem troðið hefur verið í munn þrítugra einstaklinga. Skildi hana eftir í Svíþjóð svo ég þyrfti ekki að bera hana. Mun nota hana í arininn þegar ég kem næst út.
Bezta múzíkin
Cardigans – Long gone before daylight
Brian Setzer Orchestra – Live in Japan
Bestu kaupin
Gibson ES-137 á eBay
Blogg um það hér
Verstu kaupin
Hvítur Golf Station með 1400 vél. Óþolandi drasl.
Blogg um þau frábæru kaup hér
Bestu auglýsingarnar
Honda – Cog
Honda – Cog
og Umferðarstofan hans Guðjóns.
Hana er að finna hér.
Versta auglýsingin
Hagkaup – Siggi Sigurjóns
Nissan – Ótrúlega auðvelt að kaupa
Bestu tónleikar
Kraftwerk í Kaplakrikanum
Besti Útvarpsþátturinn
Rokkland
Versti útvarpsþátturinn
Lífsaugað
Bestu bíómyndirnar
The Incredibles
Kill Bill 2
Eternal Sunshine of the spotless mind
Harry Potter and the prisoner of Azkaban
Verstu bíómyndirnar
The Passion of the Christ
The Anchorman
The Whole Ten Yards
Versta sjónvarpsmómentið
Gísli Marteinn þvingar Harry Belafonte til að raula Bananalagið hálfshugar. Spaugstofunni er allt fyrirgefið. Rétt á hælana kemur Jóhanna Vilhjálmsdóttir þegar hún var að rembast við að fá Þórólf til að segja upp starfi sínu sem borgarstjóra í beinni útsendingu. "Ertu klökkur?" Komm-on. Hún atti líka lemúrsfeis ársins þegar 67% kusu að hafa hann áfram.
Besta sjónvarpsmómentið
Kristján "ofurbelgur" Jóhansson slær betri helming Jóns & Gulla á fésið svo glymur í öllu myndverinu. Gulli Helga, sem er nánast alltaf hress, var ekki hress.
Flottast
Alma Sól Pétursdóttir
Life goes on…
Síðasti dagurinn í feðraorlofi Part II. Á morgun tekur við blákaldur raunveruleikinn, hvað sem það nú er. Á mánudaginn fékk ég nýja gítarinn minn, af gerðinni Gretsch 6120. Ég er búinn að spila af mér puttana. Bara snilld. Brian Setzer er að verða of gamall til að spila út um allan heim, svo nú ætla ég að sukka úr mér lifrina, láta tattóvera mig og setja í mig strípur og reyna að taka við honum.
2005
Sit hér þakklátur fyrir vel samsettan GPRS reikisamning Og Vodafone á eynni Gotlandi, sem tilheyrir Svíþjóð. Hingað komum við til að halda upp á nýja árið með góðum vinum, og það tókst æðislega.
Þetta er fólk sem kann þetta, sem sannast af því að við borðuðum frá 20:00 til klukkan 01:50, og allt sem við settum í okkur var lostæti. Engum datt í hug að fara eitthvert, heldur var lagt kapp á að skemmta sér eins vel og hægt var á staðnum. Það tókst líka anzi vel.
Erum að leggja af stað í bíltúr um eyjuna, og komum til með að fara til “fjáreyjar” (kennda við greindasta dýrið, sauðinn), en þar býr einmitt hæpaðasti leikstjóri Svía, Ingimar Bergman. Bið að heilsa frá ykkur ef ég hitti hann.
Mynd vikunnar er af borðhaldinu.

