Jibbbbbbbbííí
Vilhjálmi Goða fæddist dóttir í dag í eins barns goti og eru allir við hrossaheilsu. Innilega til hamingju með það Villi minn, og njótið vel.
Sjúbbídú, allir eitthvað að gjóta, og þeir sem eru ekki að því eru óléttir. Markhópurinn Ísland stækkar, og ég get gert stærri og stærri auglýsingar! Með þyrlu! Og hestum sem mynda lógó! Úr gulli!
Aðeins minna kaffi kannski…
Annars ætlum við Filmusmenn nú að selja sjálfum okkur fyrirtækið, og þannig verðum við dótturfyrirtæki sjálfra okkar sem mun svo gera yfirtökutilboð í okkur, þannig að við endum alveg forríkir. Þannig getið þið búist við meiriháttar breytingum á liferni mínu á næstunni.
10 ára Tvísemd
Það er kominn frjádagur aftur, og allt vitlaust að gera. Tilhlökkun dagsins er að fara með spúsunni út að borða, en við erum búin að vera saman í tíu ár í dag, og hún er búin að standa hörmungarnar prýðilega af sér, svo ég var að hugsa um að bjóða henni út að borða, annaðhvort á Múlakaffi eða Primavera fyrir þolinmæðina. Þetta er líka fyrsta skiptið sem við náum að fara frá saman síðan sólargeislinn fæddist.
Fékk öfluga Amazon sendingu í gær, kokfulla af bókum, og DVD með uppáhaldsgítarleikaranum mínum á tónleikum. Þennan hér.
Varð að skella disknum á fóninn í gær, og hann er bara frábær. Væri sjálfur til í að hafa með mér 16 manna og tveggja kvenna band til að spila skemmtilega tónlist. Alltaf. En.. íbúðin mín er of lítil.
Mynd dagsins er af eiginkonunni fyrir utan húsið okkar á Bárugötunni.
Krumpuprumpi
Bara svo það sé alveg á hreinu, þá birti ég hér með opinberlega fyrsta alvöru nýyrðið sem er alveg eftir mig. Ég er nefnilega farinn að heyra það í umferð, og vil að þetta sé alveg á tæru, svo að ég fái nú STEFgjöldin mín.
Orðið er KRUMPUPRUMPI og lýsir:
a) gömlum og ljótum kalli að vakna
b) einhverjum sem er úrillur og hefur allt á hornum sér að óþörfu
c) nýfæddum lemúr
Vona ég að innlegg þetta í sögu íslenskrar tungu verði móðurmálinu til góðs, og mér til upphefðar.
Annars óska ég ykkur til hamingju með snjóinn, og skil ekki af hverju allir eru svona hissa að það komi snjór á Íslandi á veturna.
Til Hamingju!
Skoffínið hann Friðrik Minnstibró á afmæli í dag. Hann er 15 ára. Það er fínn aldur.
Til hamingju sparð, og mundu að halda þig áfram frá íþróttadjöflinum. Skál.
Mynd dagsins er af Minnstabró og Ölmu Sól nýgotinni.
Tízka
Vá. Allt kemur fyrir ekki.
Hér er maður bara í stafrænum rólegheitum að leita sér að Voightlander VSL myndarvélarboddíi. Slæ inn VSL á eBay. Finn eitthvað myndavéladót. Gott og vel. Finn líka link á XL Manly Man SATIN sissy pink panties for men VSL
Verð að skoða. Og auðvitað eru þetta nærbuxur úr satíni fyrir karlmenn. Bleikar. Með sölutextanum “Slip into these new Baby Pink panties and feel like the little princess you really are”.
Manly Man nærbuxur eru því næstar á dagskrá. Það er ekkert flóknara. Svo ætla ég að fara að æfa box.
Ég sver að það var líka óvart, þegar ég sló inn eGay í staðinn fyrir eBay.
Hmmm. Þessi færsla er lítið að gera til að skerpa á frekar reyttri karlmennskuímynd minni. Best að hætta.
Wing
Öll höfum við gaman af tónlist. Tónlist er eitt af því alvinsælasta í heiminum. Staðreynd. Af nógu er að taka, og margir telja sig vel sjóaða í þeim aragrúa af tónlist sem í boði er. En treystið mér. Þið hafið ekki heyrt neitt ef þið hafið ekki heyrt í Wing.
Svona lýsir hún sér sjálf:
“Hi, I am Wing! I immigrated to New Zealand with my family about ten years ago from Hong Kong. I have been learning singing in New Zealand and I do performances in Rest Homes and Hospitals and occasionally promotional concerts as I go along.
I released my first CD Phantom Of The Opera and got a grant from the Manukau City Council for promotion. Then I released I Could Have Danced All Night and The Sound Of Music.
My latest CDs are called "Beatles Classics by Wing", "Wing Sings The Songs You Love " and "Everyone Sings Carols with Wing".
I have worked hard and I hope you have all found I am improving.
Thank you for all who supports me helping me very much as I go along.
Thank you!"
~Wing
Það er gott og blessað.
Vinur minn Gunnar Árnason varð svo hrifinn þegar hann rambaði inn á heimasíðuna hennar að hann keypti alla diskana hennar, og hefur verið að leyfa mér að heyra sumar gersemarnar. Það jafnast ekkert á við að hækka vel og hlusta á þessa snilld .:hér:.
Meira um Wing .:hér:.
Ég er orðlaus. Gunni benti reyndar réttilega á að þegar maður er farinn að setja þetta á fóninn, þá er maður búinn að fá of mikið af poppmoði í hausinn. Þetta er eins og prump í blómabeði. Tilbreyting, en kannski ekki sú tilbreyting sem maður hefði valið sjálfur.
Dæmið sjálf. Ég er ríkari maður fyrir að þekkja Wing.
Haust
Yfirleitt líkar mér haustið vel. Fallegir litir, laufblöð út um allt. Ferskt loft.
Nú klikkaði eitthvað. 2000 Vindstig. Ókunnugir kettir fjúka inn um svefnherbergisgluggan minn, hissa á svipinn. Fólki liggur við köfnun og alkuli í þessum hvirfilbyl.
Dr. Watson, minn sauðtryggi og nautgáfaði aðstoðarhundur, pissaði upp í vindinn, og skildi ekkert í því af hverju hans eigin keita frussaðist yfir hann í hefndarhug.
Karabíska hafið. Kóralrif. Kokteill. Kræsingar. Kóalakjöt.




