Deilir Schmeilir

Það er stórkostleg umræða í gangi á meðal þeirra sem hefur tekist að sannfæra sjálfa sig um að það sé ekki ólöglegt að hlaða niður bíómyndum og tónlist án þess að borga fyrir það.

Einhverjir rökfimleikar hafa leitt til þess að sú staðreynd að handbendi Satans™ á Ísland, STEF (Satanic Evil Forces), hafi náð að koma ósanngjörnum tolli á tóma geisladiska og DVD diska til þess að úthluta sér peningum og halda lífi í Atla Heimi Sveinssyni sé skotleyfi á að hlaða niður öllu því sem þeim sýnist. Mjög góð rök, sérstaklega þar sem STEF gerir allt til þess að halda þessum peningum innan sinnar litlu klíku.

Gaman að sjá líka að í húsleit lögreglunnar voru gerðir upptækir margir tölvumónitorar, sem eflaust hafa innihaldið mikilvæg sönnunargögn. Laganna verðir eru vel að sér í tæknimálunum. Næsta skref verður eflaust að taka með sér skipin sem eiturlyfin finnast í, og gardínurnar í húsum þar sem þýfi finnst.

Mynd dagsins er af Ölmu Sól, sem hefur engu stolið af internetinu (frábær tenging!)

Asp345

Getraun

Hér er nýmæli:

Á einni albestu popp-plötu aldarinnar sem leið er að finna textabrot sem hljóðar svo:

You surely are, a truly gifted kid.
But you’re only as good as the last great thing you did…

Hver er hljómsveitin, og af hvaða plötu er þetta lag, og hvað heitir það?

Ekki nota leitarvélar, fúskarar.

Tær sökka

Ekkert finnst mér ljótara og ógirnilegra á allri þessari jörðu en tær. Tær eru ömurlegar. Þær eru erfðabreyttir bastarðaputtar sem við þurfum ekki lengur.

Mjög fáir sem ég þekki sem nota tær af einhverju viti, nema til að safna á þær sveppum og vondri lykt. Gleymum ekki kartnaglasöfnun, sem er í miklu uppáhaldi á elliheimilum landsins. Þekki engan sem hefur náð góðum árangri á lyklaborði eða hljóðfæri með táslunum.

Sting upp á því að við hættum þessu kjaftæði og látum taka af okkur þetta vesen. Ég leiði veginn, og ætla að klippa lítinn bita af hverri tá í hvert skipti sem ég klippi á mér táneglurnar. Læt ykkur vita hvernig gengur.

Og þið, fólkið sem er með tá-fetish og fær kikk út úr því að sjúga tær, ykkur á að loka inni þar sem þið getið ekki skemmt annað fólk.

Bjakk

I, Robot

Ég hef lesið mikið af besta vísindaskáldskap síðustu áratuga, og í mörgum þeirra gengur söguþráðurinn út á að tölvur verði sjálfstætt hugsandi, öðlist tilfinningar og abstrakt hugsun og taki í kjölfarið yfir heiminn og drepi mannaumingjana sem bjuggu þær til.

Þetta er svosem ónotanleg tilhugsun, þótt að mér finnist ekki líklegt að tölva standist Turing-prófið á næstu árum. Sérstaklega ekki Windows tölvur, en þær eru eins langt frá því að vera með meðvitund og púströrið á bílnum mínum.

Það sem enginn sá fyrir, en varð að raunveruleika var að vélmenni mundu sölsa undir sig heiminn með því sjá um alla símsvörun og gera fólk pirrað og magna upp vanlíðan þess svo að það færi út og dræpi hvort annað. Þetta getur tekið nokkrar kynslóðir, en símavélmennin hafa nógan tíma.

Í alvöru. Prófið að hringja í eitthvað fyrirtæki í dag. Bankann ykkar. Eitthvað fyrirtæki sem er stærra en 10 hræður. Hringið í Landssímann. Öll fyrirtækin eru farin að láta einföldustu símtöl kosta fúkyrði og formælingar, gremju og gæsahúð. Það getur tekið fokking tuttugu mínútur að ná sambandi við einhvern í bankanum mínum. Í millitíðinni er ég kominn með liðagigt af hnappavali. Þegar ég næ sambandi við mannhelvítið segir hann mér að nota heimasíðuna þeirra.

Þú hefur náð sambandi við helvíti. You have reached Hell. Press one for English. Veldu 2 fyrir pantanir á eilífum vítiseldi. Veldu 3 fyrir ábendingar. Veldu 4 fyrir kvartanir. Ef þú velur ekkert verður þú sjálfkrafa fluttur í skiptiborðið, þar sem enginn svarar. Eftir að þú ert búinn að hlusta á leiðinlegasta lag sem við gátum fundið í Pan-Flautu-útsetningu og krappí hljómgæðum, munum við byrja rununa okkar aftur. Þú hefur náð sambandi við helvíti. í augnablikinu eru allir árar og púkar uppteknir. Símtölum verður svarað í réttri röð. Þú ert núm…klikk Þú hefur náð sambandi við helvíti…..

Símafyrirtækin græða á tá og fingri. Ég sit við borðið mitt með síhækkandi kollvik og blóðþrýsting á pari við kettling á kókaíni. Vélmennin hafa unnið.

Hal900

HeiHei!

Það er allt búið að vera að gerast. Hér eru helstu fréttir nýliðinnar viku settar saman í auðlesið form fyrir þig.

PEDRO HITTI KÓNGINN

Okkur Lottu var boðið í Norræna húsið að hitta Karl Gústav, Sylvíu og Viktoríu krónprinsessu á meðan þau voru hér að skoða rigningu.

Þar stóðu þau eins og vel gerðir og smekklega skreyttir hlutir og skóku skanka allra þeirra sem vildu. Þannig gekk ég upp að fyrirmennunum og heilsaði þeim og bauð velkomin í súldina.

Kóngurinn horfði með tómlæti á fastan punkt í veggnum fyrir aftan mig og hugsaði um karabíska hafið. Drottningin var lægri en ég bjóst við, en geislaði af diplómatískri ánægju og gleði. Ekkert miðað við krónprinsessuna, sem var stórglæsileg og kom frábærlega fyrir, horfði í augun á öllum, og fór með alla eins og það hafi verið það skemmtilegasta í hennar lífi að hitta þá í andyrinu á þunglyndilsegu Norræna húsinu, þar sem þeim rétt tókst að forðast að stórslasa sig á fatahengiskrókum þegar þau komu inn.

Niðurstaða eftir þetta hitt var að ég mundi ekki vilja vera kóngur, það er ömurlegt djobb. Má ég frekar vera fjórði prinsinn sem er alltaf fullur að sólunda ríkisarfinum í Monte Carlo, og semur ekki við hirðina. Rokkprinsinn. Whatever.

DR. WATSON MISSIR DINGLUMDANGLIÐ

Undan fóru gersemarnar, sá litli var geldur, og gengur nú um með stóran óþolandi skerm til að forðast að hann komist í saumana. Kúlurnar og karlmennskan hafa nú verið dysjaðar í Garðabænum. Hann var lítill yfir þessu í sólarhring, en er nú búinn að taka gleði sína á ný að mestu leyti.

Kostur við þetta að ef hann standur nálægt sjónvarpinu með skerminn, næ ég Sýn óruglaðri og miklu hraðari internettengingu:-)

UPPELDIÐ ER HAFIÐ

Er búinn að kenna dóttur minni að ulla, og það gerir hún alltaf brosandi þegar hún sér mig. Er að kenna henni að heilsa og segja “Pabbi”. Síðan tekur við píanóþjálfun, og ég hætti ekki fyrr en ég hef það að fullri vinnu að ferðast með undrabarn (þýs:Wunderkind) á milli spjallþátta í Bandaríkjunum. Ullið var góð byrjun og gengur mjög vel.

Læt þetta nægja í bili, er væntanlegur af fullum krafti í bloggheima með kjaft og læti.

P

Mynd dagsins er af vatni, úr auglýsingu sem ég var að gera.

Wasser