MondayMorning…
Mjög næs helgi að baki. Það verður bara að segjast eins og er. Kom færandi hendi heim á föstudaginn með 2 filébita af púrtvínslegnu lambi sem svo sannarlega dó ekki til einskis. Kantarell sveppum var fórnað á altari græðginnar, og ég opnaði eina rauða á meðan frúin drakk mjólk. Ósanngjarnt, ég veit.
Laugardagurinn fór í fína afslöppun með spúsunni, sem verður bara myndarlegri með hverjum deginum. Við spjölluðum og lásum, og fórum svo í langan göngutúr með hundspottið. Litla krílið er farið að sparka eins og KarateKid þarna inni….sjitt allt í einu varð mér hugsað til stórleikarans Ralph Macchio með dún á efrivör og strákalegt glottið…
Í gær fórum við austur fyrir fjall í smá bíltúr, og borðuðum kökur með ættingjum í Þrastarskógi. Síðan var deginum lokað í Stúdíói með Bjarka , en þar lagði ég niður nokkrar nótur í demói fyrir Togga Popp . Það var fínasta skemmtun, og ég fór sæll og glaður að sofa.
Mynd dagsins er auðvitað af Begga. En ekki hvað?

Frjósemi…
Frjósemin í kringum mig er þvílík að það er með ólíkindum. Engu líkara er en að storkahópur hafi verið skotinn niður yfir Faxaflóanum.
Í fyrradag kom í heiminn gítarleikari, sonur Skjaldar og Ísoldar, og er hann hinn fallegasti. Við hjónin fórum að skoða hann í dag, og ég laumaðist til að sjá hvort hann væri með efnilega putta, og varð ekki fyrir vonbrigðum.
Sem sjálfskipaður gítarlærimeistari drengsins ákvað ég að gefa honum sinn fyrsta gítarhljóm í vöggugjöf, og er það hljómurinn E-dúr(opinn), en sé honum beitt rétt, getur hann verið mjög fínn og kraftmikill rokkhljómur.
En ekki nóg með það, því að Grameðlufangarinn og æskuvinur minn Pétur Örn var að eignast dóttur líka rétt fyrir miðnætti í gær. Til hamingju með það elsku kaddl!
Sjálfur hef ég verið að reyna að undirbúa mig fyrir föðurhlutverkið, farið á námskeið, lesið bækur, og skoðað mig um á netinu.
Foreldranámskeiðið sem við höfum sótt, náði ákveðnu climaxi í gær þegar okkur voru sýndar vídeómyndir af fæðingum. Það var norska parið Lars og Lena sem hleyptu okkur inn í fæðingarherbergið sitt, og var ekkert nema gott um það að segja. Þó get ég ekki látið hjá líða að nefna að kollegi minn sem tók og klippti myndina af fæðingu þeirra gat ekki stillt sig um að reyna að yfirdramatisera þetta kraftaverk sem ekki þarfnaðist neinnar hjálpar. Þvílíka Bónus-synta-lyftutónlistin, allt í botni, sló-mó á mjög asnalegum stöðum, mér leið eins og í ódýrri Hallmark mynd. Svo leit ég í kringum mig. Flestallar konurnar voru grátandi yfir þessu, enda þvílíkt safn af hormónum í einu herbergi að það væri öruggur dauði að koma þarna inn og kyrkja eins og einn sætan kettling.
Ekki það að mig langi til þess.
Mynd dagsins er af gítarleikaranum og mömmu hans.

We are ze…
Í gær fór ég með Göbbler von Klipp í ljótt leikfimihús í Hafnarfirði til að horfa á fjóra rúmlega miðaldra þjóðverja spila standandi á fartölvur. Kraftwerk var það heillin.
Tónleikarnir komu mér verulega á óvart. Þeir voru frábærir. Hljómburðurinn í Handarkrikanum, eins og kalla má Kaplakrikann þegar hann er fullur af fólki, var alveg hreint stórkostlegur, og Kraftwerk spilar jú tónlist sem nýtur sín vel í góðu kerfi.
Þýski blúsinn dunaði af slíkri tilfinningu að maður vildi bara kaupa sér krómstóla og láta malbika hjá sér garðinn þegar þeir voru búnir. Magnað helvíti. Toppurinn á tilverunni var að sjálfsögðu “We are the robots” með vélmenni á sviðinu, á meðan þýsku gamalmennin fengu að pissa og taka hjartapillurnar sínar. Computerworld kom líka sterkt inn. Alger toppkonsert sem ég gleymi ekki.
Mynd dagsins…?

Ahhhhhhh
Xtreme Makeover III

Þetta er hún Gagga.
Gagga kom til okkar, vitstola af óánægju með eigið útlit. Henni fannst hún vera með of stórt nef, og ekki nógu munúðarlegar varir. Hún þráði helst af öllu að geta gert fallegan og lostafullan Hollywood-stút á fullar rauðar varirnar fyrir eiginmann sinn.
Minna nef og örlítið hærri kinnbein urðu svo til þess að auka enn á tign þessarar stúlku, sem fyrir meðferðina taldist þegar til fríðari snóta.
Ekki versnaði hún í meðförum mínum, eins og má sjá af myndunum sem hér fylgja. Til hamingju með nýja útlitið, Gagga mín.
