Bono Estente!
Heilinn á mér er enn svolítið soðinn eftir 2 sveitta tökudaga á þriðjudag og miðvikudag. Golden moment: Vorum að fara að taka í sjoppu á miðvikudaginn þegar við gerðum okkur grein fyrir því að allir krakkar í heiminum plús tveir koma í sjoppur til þess að gaula fyrir nammi á öskurdaginn. Þurftum frá að hverfa og taka fram á nótt í staðinn.
Í dag verða síðan veitt verðlaun fyrir bestu auglýsingar ársins, þannig að við félagarnir í Filmus ætlum að fara fínt út að borða á Nördica. Ekki mun það spilla fyrir kvöldinu ef við hreppum verðlaun. Þá gæti ég endað með því að fá mér nokkur prómill.
Góða helgi….
Mynd dagsins er af laufblöðum, af því að ég var að hlusta á hljómsveitina Leaves. Heppinn….

Bolludagur
Búinn að eyða öllum bolludeginum í að undirbúa tökur fyrir morgundaginn. Er með skemmtileg handrit í höndunum, sem ég vona að ég nái að gera eitthvað gott úr.
Það er temmilega mikið af auglýsingum sem eru að koma út um þessar mundir, margar hverjar ofsavel gerðar, en lélegar. Það er alltaf jafn mikil synd að sjá (svo ég tali nú ekki um að gera) auglýsingar sem mikið er lagt í en segja lítið. Stundum finnst mér bransinn vera að djöflast svakalega mikið við að búa til auglýsingar fyrir sjálfan sig, en ekki fyrir kúnnana sína. Auglýsingabransinn má aldrei verða of fínn með sig og gleyma að hann er bara hluti af sölumennsku viðskiptavinanna.
Aftur á móti er ég almennt stoltur af gæðum kvikmyndaðra auglýsinga, þær eru orðnar mjög fagmannlegar hér heima, og mikið af nýju hæfileikafólki að gera góða hluti. Vona bara fyrir kúnnanna hönd að þeir hætti að búa til flott rusl. Kúnnarnir okkar þurfa nefnilega að fá fjárfestingarnar sínar til baka. Annars er jú andskotann ekkert fyrir okkur að gera.
Fálkaorðuna fái sú hugrakka sál sem tekur að sér auglýsingamennskuna fyrir Ástþór Magnússon í komandi forsetaframboði. Maðurinn sem lítur alltaf út fyrir að hann sé nýbúinn að myrða barn leikur ekki í höndum ímyndarfólks, og ég tek að ofan fyrir þeim sem það að sér taka. Boðskapurinn hans Ástþórs er langt frá því að vera vitlaus, og er vel í húsum hæfur. Hann er aftur á móti svo óheppinn að vera fæddur með króníska morðingjastöru og vera með alnæmi fyrir góðri taktík.
Mynd dagsins er að sjálfsögðu ekki af Ástþóri, heldur hæfileikaríkum gufubaðssöngvurum úr röðum Wörtunnar BC.

Flöskudagur
Það er kominn föstudagur, og langþráð helgin byrjuð að gægjast fyrir hornið. Ég ætla að reyna að einbeita mér að því um helgina að gera sem allra minnst annað en það sem er lífsnauðsynlegt, og safna orku fyrir næstu viku, sem fyrirsjánlega verður strembin. Kannski verður Wranglerinn misnotaður í einhverri slyddu og reynt að taka eina eða tvær ljósmyndir.
Helst að frétta að “Heppinn” auglýsingin, sem ég leikstýrði fyrir VÍS, var tilnefnd til lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, í flokki almannaheillaauglýsinga. Auðvitað vona ég að það gangi nú allt vel. Alltaf gaman að fá verðlaun.
Annars lýk ég þessu í dag með mynd af manni sem barðist hetjulega við Anorexíu, og vann þann skaðræðis-sjúkdóm, og óska öllum þeim sem hér hafa villst inn góðrar helgar.

Kominn aftur!
Það er einhvernveginn allt búið að ganga á hjá mér, og ég sá mig knúinn til þess að bjóða upp á skammvinna bloggþurð í smá tíma.
Ég er farinn að hlakka til þess að komast í gott páskafrí, því að ég er orðinn vægast sagt langþreyttur, og hefði gott af hvíldinni. Þó eru ótæmandi verkefni framundan fyrir utan miklar vinnuannir, eins og húsnæðisskipti, almenn ólétta konunnar minnar, sem við vonum að endi síðan með goti í júlí, og allt hitt smádótið sem þarf að hugsa um, en það verður ekki tæklað á tómum batteríum, þannig að ég er að reyna að skipuleggja einhverja smá utanlandsferð svona rétt í kringum páskalambið.
Svo horfir maður útundan sér á fréttirnar og fylgist með “stóra líkfundarmálinu” og spáir í því með hryllingi hvað landið okkar er orðið alþjóðlegt.
Sá að menn voru að leiða líkur að því að öll vísindin í kringum fráganginn á líkinu hefðu verið lærð úr Hollywood myndum. Menn eitthvað að verða uppiskroppa með vinkla á málið.
Nú hlaupa allir herskæðir forsjárhyggjufeministar sem mussu geta valdið örugglega upp til handa og fóta og berjast gegn Hollywoodmyndum út af þessu, og út af því að það eru fleiri karlmenn drepnir í Hollywwodmyndum en konur, og það getur haldið konum frá kvikmyndaleik. Ahhh. Stundum hlýtur að vera bara þægilegt að vera einfaldur.
Smell you later,
Mynd dagsins er af Pétri Erni vini mínum, með kassagítarinn sinn að vopni.
